Fundu óvænt málm í andrúmslofti glóandi gasrisa Uppgötvun á málmtegundinni barín í lofthjúpi tveggja fjarlægra fjarreikistjarna kom vísindamönnum í opna skjöldu. Svo þungt frumefni hefur ekki áður fundist í lofthjúpi reikistjörnu og er fundurinn sagður afhjúpa hversu lítið menn vita enn um reikistjörnur í öðrum sólkerfum. Erlent 13. október 2022 12:01
Kunna að hafa grandað sjálfum sér með loftslagsbreytingum á Mars Hugsanlegt er að örverur kunni að hafa valdið eigin útrýmingu á Mars með því að breyta loftslagi reikistjörnunnar. Hópur vísindamanna hefur greint þrjá staði þar sem þeir telja mestar líkur á að finna merki um örverurnar, ef þær þrifust þá einhvern tímann þar. Erlent 12. október 2022 21:00
NASA tókst að stýra smástirni af braut en það kostaði 47 milljarða króna Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur tilkynnt að tilraun á nýrri aðferð þeirra til þess að afstýra smástirnum sem séu á leið til Jarðar hafi tekist. Stofnunin framkvæmdi tilraunina sjálfa fyrir um tveimur vikum síðan og kostaði hún 325 milljónir Bandaríkjadala eða 47,5 milljarða króna. Erlent 11. október 2022 21:09
Fylltist sorg yfir hlutskipti jarðarinnar í geimferðinni Kanadíski leikarinn William Shatner segist aldrei hafa upplifað eins mikla sorg og í geimferðinni sem hann fór í fyrir ári. Að sjá jörðina í köldum geimnum vitandi að mannkynið sé að rústa henni hafi gert ferðina líkari jarðarför en hátíð. Lífið 10. október 2022 15:22
Bein útsending: Geimfarar sendir af stað til geimstöðvarinnar Bandaríska fyrirtækið SpaceX mun skjóta fjórum geimförum af stað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar í dag. Geimförunum verður skotið á loft um borð í Dragon-geimfari SpaceX með Falcon-9 eldflaug. Erlent 5. október 2022 15:01
Tíu þúsund kílómetra hali eftir áreksturinn við geimfarið Um tíu þúsund kílómetra langur hali af braki gengur nú aftur úr smástirni sem bandarískt geimfar skall á í síðasta mánuði. Vísindamenn búast við því að halinn lengist og þynnist enn meira út þar til hann verður ekki lengur greinanlegur. Erlent 4. október 2022 21:08
Fyrstu myndirnar af vatnaveröldinni Evrópu í tuttugu ár Könnunarfarið Júnó er byrjað að senda myndir frá nærflugi sínu hjá ístunglinu Evrópu við Júpíter. Myndirnar eru þær fyrstu af tunglinu frá því að Galíleó flaug þar fram hjá fyrir 22 árum. Talið er að haf fljótandi vatns sé að finna undir ísilögðu yfirborði Evrópu þar sem líf gæti mögulega þrifist. Erlent 30. september 2022 11:24
NASA og SpaceX vilja lengja líftíma Hubble Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og SpaceX hafa gert samkomulag um tilraunaverkefni sem snýr að því að hækka mögulega sporbraut geimsjónaukans Hubble og lengja líftíma hans. Það voru forsvarsmenn SpaceX og Polaris Program sem leituðu til NASA og lögðu til að möguleiki þess að þjónusta Hubble á þennan hátt, og mögulega aðra gervihnetti, yrði rannsakaður. Erlent 30. september 2022 10:27
Jarðvarnartilraun talin hafa heppnast Fyrstu merki benda til þess að tilraun bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA til að breyta stefnu smástirnis hafi heppnast í gær. Það gæti þó tekið nokkra mánuði að staðfesta hversu mikið árekstur geimfars við smástirnið breytti stefnu þess. Erlent 27. september 2022 09:25
Hvetur almenning að líta upp Júpíter, stærsta reikistjarna sólkerfisins, hefur ekki verið nær jörðinni í tæp sextíu ár. Hann er ægibjartur og verður áberandi á næturhimninum næstu daga. Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðikennari og vísindamiðlari, hvetur almenning til að líta upp. Innlent 26. september 2022 22:06
Risastór viðburður innan vísindasamfélagsins Í kvöld fer fram risastór viðburður innan stjörnufræðisamfélagsins þegar NASA, geimvísindastofnun Bandaríkjanna, gerir tilraun til að færa smástirni. Það verður gert með því að brotlenda geimfarinu DART á smástirninu og allt fer þetta fram í beinni útsendingu. Erlent 26. september 2022 21:44
Brotlentu geimfarinu í beinni útsendingu Geimfari á vegum NASA, bandarísku geimvísindastofnunarinnar, verður brotlent á smástirni í kvöld. Tilgangurinn er að athuga hvort stefna smástirnisins breytist við áreksturinn og kanna þannig hvort hægt sé að breyta stefnu smástirnis, ef slíkt kynni að stefna að jörðinni. Erlent 26. september 2022 18:32
Skýrasta myndin af Neptúnusi í þrjátíu ár Ekki frá því að könnunarfarið Voyager 2 flaug fram hjá fyrir meira en þrjátíu árum hafa menn fengið eins skarpa mynd af ísrisanum Neptúnusi og James Webb-geimsjónaukinn náði nýlega af honum. Hringir plánetunnar og stærstu tungl eru greinileg á myndinni. Erlent 21. september 2022 14:55
Methafi í samfelldri geimdvöl allur Rússneski geimfarinn Valeríj Poljakov sem á metið yfir lengstu samfelldu dvöl í geimnum er látinn, áttræður að aldri. Poljakov dvaldi í sovésku geimstöðinni Mír á braut um jörðu í rúma 437 daga samfleytt á tíunda áratug síðustu aldar. Erlent 19. september 2022 11:43
Til tunglsins í þriðju tilraun? Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið að reyna að skjóta Artemis-1 af stað til tunglsins eftir tvær vikur, eða þann 27. september. Þetta verður í þriðja sinn sem reynt verður að koma geimfarinu af stað en síðustu tvö skipti hafa misheppnast vegna bilana. Erlent 13. september 2022 08:57
Geimskot Blue Origin misheppnaðist Sjálfvirkur neyðarbúnaður geimfars Blue Origin fór í gang við misheppnað geimskot fyrirtækisins í dag. Þegar New Shepard eldflaugin sem notuð var til geimskotsins bilaði í 28 þúsund feta hæð og á rúmlega þúsund kílómetra hraða, kviknaði á hreyflum geimfarsins. Erlent 12. september 2022 15:17
Ætla ekki að reyna aftur í bráð Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) munu ekki reyna að skjóta Artemis-1 af stað til tunglsins á næstu dögum. Til stendur að flytja Space Launch System-eldflaugina og Orion geimfarið aftur af skotpalli í Flórída, náist ekki að laga leka sem kom á tanka eldflaugarinnar á skotpallinum. Erlent 4. september 2022 08:04
Stjörnu-Sævar hvetur fólk til að horfa til himins Sævar Helgi Bragason, oftar þekktur sem Stjörnu-Sævar segir norðurljós gærkvöldsins aðeins hluta af því sem megi sjá á næturhimninum um þessar mundir en þrjár reikistjörnur skíni nú skært. Haustið sé besti tíminn til þess að sjá vetrarbrautina í allri sinni dýrð. Innlent 3. september 2022 18:13
Bein útsending: Hættu við aðra tilraun vegna leka Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) eru hættir við að reyna að skjóta Artemis-1 af stað til tunglsins í kvöld. Hætt var við aðra tilraun til fyrsta tunglskots Artemis-áætlunarinnar vegna leka á einum af elsdneytistönkum Space Launch System-eldflaugarinnar. Erlent 3. september 2022 14:30
NASA reynir aftur á laugardag Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) ætla að gera aðra tilraun til að koma geimfari á braut um tunglið á laugardaginn. Hætt var við fyrsta tunglskot Artemis-áætlunarinnar á mánudaginn vegna vandræða með einn af stærstu hreyflum Space Launch System-eldflaugarinnar. Erlent 31. ágúst 2022 16:41
Hætt við fyrsta geimskot Artemis-áætlunarinnar Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa hætt við að skjóta fyrsta geimfari Artemis-áætlunarinnar á loft í dag. Var það gert vegna bilunar í einum af fjórum aðalhreyflum Space Launch System-eldflaugarinnar. Erlent 29. ágúst 2022 09:31
Webb greindi koltvísýring í andrúmslofti fjarreikistjörnu Geimvísindamenn hafa fundið skýr og greinileg ummerki koltvísýrings í andrúmslofti gasrisa í annarri stjörnuþoku. Þetta er í fyrsta sinn sem koltvísýringur greinst í andrúmslofti fjarreikistjörnu. Erlent 25. ágúst 2022 23:46
NASA deildi óhugnanlegri hljóðupptöku af svartholi NASA deildi síðastliðinn sunnudag hljóðupptöku af svartholi úr miðju Perseusar-stjörnuþokuklasanum sem er meira en tvö hundruð milljón ljósár frá jörðinni. Erlent 23. ágúst 2022 09:02
Gæði nýrra mynda af Júpíter komu á óvart Geimvísindamenn birtu í dag nýjar myndir af gasrisanum Júpíter sem teknar voru með James Webb-geimsjónaukanum. Júpíter er áhugaverð reikistjarna og vonast vísindamenn til þess að skilja hana mun betur með gögnunum frá James Webb. Erlent 22. ágúst 2022 22:17
Fyrstu Starlink-rákirnar á næturhimni yfir Íslandi Fyrstu Starlink-gervihnettirnir frá fyrirtækinu SpaceX hafa sést á himni yfir Íslandi. Þeim var skotið á loft fyrir nokkrum dögum og farnir að setja mark sitt á næturhimininn yfir Íslandi. Gervihnöttum sem þessum mun fara hratt fjölgandi og munu þeir hafa mikil áhrif á ásýnd himinsins. Innlent 18. ágúst 2022 15:20
Komin á skotpall fyrir fyrstu tunglferðina Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) luku í dag við að flytja fyrstu eldflaug Artemis-áætlunarinnar á skotpall í Flórída. Var það gert fyrir fyrstu tunglferð áætlunarinnar en til stendur að skjóta eldflauginni á loft eftir tæpar tvær vikur. Erlent 17. ágúst 2022 15:09
Færast nær fyrsta geimskoti Starship Starfsmenn geimferðafyrirtækisins SpaceX náðu nýjum áfanga í Texas í vikunni þegar tilraunir voru gerðar með Starship-geimfarið. Kveikt var á hreyflum fyrra og seinna stigs Starship en þetta var í fyrsta sinn sem tilraunir eru gerðar með fyrra stigið, sem kallast Super Heavy. Erlent 11. ágúst 2022 16:33
Styttist í fyrstu tunglferðina Forsvarsmenn Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna (NASA) hafa sett stefnuna á því að fyrsta tunglferð Artemis-áætlunarinnar verði farin þann 29. ágúst. Þá verður geimfari skotið til tunglsins og flogið hring þar í kring og til baka. Erlent 9. ágúst 2022 13:11
Átök Rússlands og vesturveldanna ná út í geim Rússar hyggjast slíta sig frá samstarfinu um Alþjóðlegu geimstöðina árið 2024 og byggja upp sína eigin geimstöð. Yuri Borisov, nýr yfirmaður rússnesku geimferðastofnunarinnar Roskosmos, segir Rússar ætla að efna allar skuldbindingar sínar fram að því en þeir hafa átt í samstarfi við Bandaríkin og fleiri ríki um rekstur Alþjóðlegu geimstöðvarinnar frá árinu 1998. Erlent 26. júlí 2022 16:08
Uppgötvuðu elstu stjörnuþoku sem hefur sést James Webb-geimsjónaukinn náði nýverið mynd af stjörnuþokunni GLASS-z13 sem er 13,5 milljarða gömul og þar af leiðandi elsta stjörnuþoka sem hefur verið uppgötvuð til þessa. Erlent 21. júlí 2022 11:58