Jólavefur Vísis

Jólavefur Vísis

Allt um undirbúninginn, aðventuna, uppskriftir, jólalög og margt fleira.

Fréttamynd

Piparkökuhús

Það eru ekki jól hjá mörgu barninu - og fullorðna fólkinu - án þess að piparkökuhús sé bakað.

Jól
Fréttamynd

Samviskulegar smákökur

Hollusta, hamingja, leikur og sköpun eru aðalsmerki jólabakarans Auðar Ingibjargar Konráðsdóttur, sem galdrar fram guðdómlegar og hollustu-jólasmákökur sem fjölskyldan öll getur útbúið saman í ljúfum jólaanda.

Jól
Fréttamynd

Kjörin jólagjöf gegn valkvíða - myndir

„Við erum alltaf í góðu skapi og leggjum okkur fram við það að taka vel á móti viðskiptavinum okkar og er umhugað um að þeim líði sem allra best meðan á heimsókn þeirra í Kringlunni stendur."

Jólin
Fréttamynd

Spænsk jól: Roscon de Reyes

Á Spáni eru jólin haldin dálítið öðruvísi en á Íslandi. Fjölskyldur koma saman á jóladag og borða mikið og drekka góð vín, meðal annars marispan og kampavín.

Jól
Fréttamynd

Sörur

Uppskrift. Fullkomlega ómótstæðilegar smákökur.

Jól
Fréttamynd

Smábitakökur Eysteins

Þessar súkkulaðibitakökur fann Eysteinn Eyjólfsson upp þegar hann var ellefu ára gamall fyrir tveimur árum.

Jól
Fréttamynd

Selma Björns: Ég hef notið blessunar að eiga mömmu sem er jólabarn

„Ég er rosalegt jólabarn og kemst alltaf í gírinn um leið og skammdegið byrjar að vera yfirþyrmandi og maður sér fyrstu seríurnar," svarar Selma Björnsdóttir aðsurð út í jólahátíðina og hennar upplifun á þessum árstíma. „Ég er algjörlega með því að að jólastemning byrji í lok október byrjun desember. Við Íslendingar þurfum jólaljós og fegurð í skammdeginu. Allt sem gleður augað og hjartað."

Jólin
Fréttamynd

Rétt meðhöndlun á jólatré - myndir

Mikil meirihluti heimila landsins eru með „lifandi” jólatré og vilja að þau haldist falleg öll jólin og felli sem minnst barr. Hann Bjarni í „jólatrésskógi” Blómvals ráðleggur okkur að bleyta jólatréð vel áður en það er tekið inn,m ef þess er kostur, því það gefur meiri barrheldni.

Jólin
Fréttamynd

Ostastangir á jólum

Þessar kökur eru í miklu uppáhaldi á heimili Dóru Gylfadóttur. Þar eru þær kallaðar "Hollu kökurnar", enda sykurlausar, og því skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnum smákökum.

Jólin
Fréttamynd

Sönn jól eru góðar tilfinningar

„Eftirminnilegustu jólin eru frá árinu 1999 þegar við hjónin bjuggum ásamt tveimur elstu sonum okkar í Flórída og héldum jólin hátíðleg í 25 stiga hita og jólaföt drengjanna voru stuttbuxur og stuttermabolir," svarar Rósa Guðbjartsdóttir sem gefur út fyrir þessi jól matreiðslubókina „Eldað af lífi og sál" aðspurð um eftirminnileg jól.

Jólin
Fréttamynd

Pálmi Gunnars: Upp úr hádegi ilmar húsið

„Í aðdragand jólanna geng ég í skóg að ná í jólamatinn. Ég ólst upp við þennan bragðgóða fallega hænsnfugl sem hátiðarmat og hefðin er afar sterk á mínu heimili varðandi þenna hluta hátíðarmatseðilsins," svarar Pálmi Gunnarsson tónlistarmaður aðspurður út í hans jólahefðir. „Það er einstök stemming sem fylgir rjúpnaveiðum. Árstíminn, birtan, snjórinn og einveran, allt helst það í hendur við góða tilfinningu sem fylgir því að ná í hátiðarmatinn."

Jólin
Fréttamynd

Villibráð á veisluborð landsmanna

Villibráðin er vinsæl á veisluborðum landsmanna yfir hátíðirnar. Hér gefst lesendum kostur á að kíkja í uppskriftabækur matreiðslumeistara Perlunnar þar sem hreindýr, rjúpur, gæsir og endur koma við sögu.

Jól
Fréttamynd

Rúsínukökur

Þessa girnilegu uppskrift af rúsínukökum sendi Þórdís Borgþórsdóttir okkur

Jólin
Fréttamynd

Spennufíkill korter fyrir jól

„Ég veit ekki hvort það er tilviljun eða dulin spennufíkn, en ég fer oft af stað í breytingar heima hjá mér korter fyrir jól, það er sennilega að þá hefur maður jólin til að reka á eftir manni sem einhverskonar „skiladag", segir útvarpsmaðurinn Gunnlaugur Helgason, betur þekktur sem Gulli Helga, spurður út í undirbúning fyrir hátíðarnar. „Ég skal alveg viðurkenna að það er voða gaman að fara í breytingar heima hjá sér en það þarf oft einhvern eða eitthvað til að ýta manni af stað og í þessu tilfelli var það dóttir mín sem vildi ekki hafa bleika litinn í herberginu sínu lengur," segir Gulli. Hvað kemur þér í hátíðarskap? „Frost, snjór, piparkökur, Ó helga nótt með Agli Ólafs, jólaljós og smá áhyggjur af jólagjöfunum. Annars er sú venja hér á heimilinu að pakka jóladiskum og jólamyndunum (DVD) með skrautinu þannig að þegar að kassarnir eru opnaðir þá er oft sest niður og horft á skemmtilegar myndir sem tengjast jónunum, ég mæli með: Love Actually, Chrismas Vacation, White Christmas, It´s a Wonderful Life svo einhverjar séu nefndar," segir hann. Eftirminnileg jól „Ætli að séu ekki jólin sem yngsti sonur okkar fæddist, Ágústa konan mín var sett 19. des en á aðfangadag var hann ekki enn kominn í heiminn. Hún mátti ekki hósta þá hélt ég að hún væri að fara fæða, en svo fór hún af stað um nóttina og hann fæddist á jóladag. Pabbi hans er líka smiður en móðir hans heiti Ágústa ekki María," segir Gulli hlæjandi. Stúfur birtist alltaf á aðfangadagskvöld „Við höfum fengið „óvænta" heimsókn undanfarin 20 ár á aðfangadag, þá hefur Stúfur komið með pakka heim til okkar, veit ekki af hverju, sennilega eru börnin mín svo stillt. Undanfarin jól hefur verið hamborgarahryggur á aðfangadag, en núna verður þríréttað því ég fékk gefins tvær rjúpur og ég mun borða þær báðar aleinn. Yngsti sonur minn vill nautalund og restin hamborgarahrygg þannig að það verður fjör í eldhúsinu þann daginn," segir Gulli að lokum. - [email protected]

Jólin
Fréttamynd

Skotheld fegrunarráð fyrir jólin

„Á vinnuborðinu hjá mér þegar kemur að augnförðun fyrir þessi jól eru gylltir og kóngabláir litir," segir Karl Berndsen hár- og förðunarfræðingur.

Jólin
Fréttamynd

Stollenbrauð

Stollenbrauðið þýska er fallegt og bragðast vel með smjöri og heitu súkkulaði.

Jólin
Fréttamynd

Tökum okkur góðan tíma í að finna möndluna

„Ég er nú þegar byrjuð að huga að jólunum. Búin að birgja mig upp af kertum til að hafa það kósý í skammdeginu svo það er nú þegar orðið nokkuð jólalegt á heimilinu," svarar María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona aðspurð út í undirbúning fyrir jólin. „Mér finnst líka svo gott að hafa kerti hjá mér í vinnuni yfir dimmasta tímann. Svo er ég búin að kaupa nokkrar

Jólin
Fréttamynd

Rjómalöguð sveppasúpa

Sveppirnir eru steiktir uppúr smjöri og hveitinu er blandað saman við, þá er soðinu blandað saman við og hrært þar til kekkjalaust.

Jólin