Mads Mensah nú neikvæður og má vera með á HM Danska handboltastjarnan Mads Mensah óttaðist um tíma að hann myndi missa af fyrstu leikjum Dana á HM í handbolta en nú hefur kappinn aftur fengið grænt ljós. Handbolti 11. janúar 2023 09:02
Japanir saka Kínverja um hefndaraðgerðir Stjórnvöld í Japan hafa mótmælt þeirri ákvörðun Kínverja að hætta að gefa út vegabréfsáritanir til Japana og segja um að ræða hefndaraðgerðir vegna ákvörðunar japanskra stjórnvalda að krefjast neikvæðrar niðurstöðu úr Covid-19 skimun frá kínverskum ferðalöngum. Erlent 11. janúar 2023 07:28
„Þá kviknar þessi viðbjóðslega tilfinning sem við gengum í gegnum“ Leikmönnum og starfsliði í kringum íslenska karlalandsliðið í handbolta er létt samkvæmt Kjartani Vídó Ólafssyni, upplýsingafulltrúa og markaðsstjóra Handknattleikssambands Íslands eftir að allir greindust neikvæðir fyrir kórónuveirusmiti í dag. Það bar hins vegar á stressi vegna prófanna. Handbolti 10. janúar 2023 13:01
Engin fagleg rök fyrir aðgerðum á landamærum vegna Covid í Kína Sóttvarnalæknir telur engin fagleg rök fyrir því að taka upp aðgerðir á landamærum hér á landi til að vernda lýðheilsu vegna útbreiðslu Covid-19 í Kína. Þetta kemur fram í nýju minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra. Innlent 10. janúar 2023 11:46
Kórónuveirusmit hjá stjörnuleikmanni Dana Íslenska karlalandsliðið í handbolta virðist hafa sloppið við kórónuveiruna en sömu sögu er ekki hægt að segja af frændum vorum Dönum. Handbolti 10. janúar 2023 11:45
Frábærar neikvæðar fréttir af landsliðinu í handbolta Allir leikmenn og starfsmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta fengu góðar fréttir eftir kórónuveirupróf hópsins. Handbolti 10. janúar 2023 10:19
Mega spila með Covid á Opna ástralska Keppendur á Opna ástralska meistaramótinu í tennis þurfa ekki að fara í Covid-próf og mega keppa þótt þeir séu með veiruna. Sport 9. janúar 2023 10:31
Gangast við miklum fjölda smita en ekki fjölda dauðsfalla Nærri 90 prósent íbúa í þriðja fjölmennasta héraði Kína hafa greinst með Covid-19, að sögn yfirmanns heilbrigðismála. Þetta þýðir að um 88,5 milljónir manna í héraðinu hafi veikst. Erlent 9. janúar 2023 07:30
Dönsku stjörnurnar taka undir með Björgvini Páli Stór nöfn í handboltaheiminum taka undir gagnrýni Björgvins Páls Gústavssonar á umdeildar Covid-reglur IHF sem verða í gildi á HM í handbolta sem hefst í næstu viku. Handbolti 6. janúar 2023 13:00
Furðar sig á ströngum Covid-reglum: „Ekkert annað en þvæla og vitleysa“ Ívar Benediktsson, ritstjóri vefmiðilsins Handbolti.is, var gestur í seinasta þætti af hlaðvarpi Seinni bylgjunnar þar sem hitað var upp fyrir komandi heimsmeistaramót í handbolta. Ívar ræddi meðal annars um þær ströngu Covid-reglur sem verða í gildi á mótinu og finnst þær í skásta lagi furðulegar. Handbolti 6. janúar 2023 07:02
Veikt svar IHF við gagnrýni Björgvins Páls: „IHF reynir að stjórna eins miklu og hægt er“ Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna gagnrýni sem sambandið hefur sætt vegna Covid-reglna á komandi heimsmeistaramóti karla í handbolta. Handbolti 5. janúar 2023 15:31
ESB mælir eindregið með því að Kínverjar verði skyldaðir í próf Evrópusambandið leggur eindregið til að aðildarþjóðir þess krefjist neikvæðs kórónuveiruprófs af kínverskum ferðamönnum áður en þeir komast inn í landið. Erlent 5. janúar 2023 06:44
Formaður HSÍ: „Höfum reynt að bregðast við“ Guðmundur B. Ólafsson formaður HSÍ segir erfitt úr þessu að breyta reglum IHF um viðbrögð sambandsins komi upp kórónuveirusmit á HM handbolta. Hann segir að búið sé að reyna að bregðast við. Handbolti 4. janúar 2023 20:31
Björgvin Páll sendir IHF bréf vegna umdeildra Covid-reglna Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals og íslenska handboltalandsliðsins, hefur sent Alþjóða handknattleikssambandinu, IHF, bréf vegna umdeildra reglna varðandi Covid-19 sem verða í gildi á HM í Svíþjóð og Póllandi sem hefst í næstu viku. Handbolti 4. janúar 2023 11:03
Myndir ársins 2022: Eldgos, óveður og menn í járnum Ljósmyndarar og myndatökumenn Vísis voru á ferð og flugi árið 2022. Eldgos, óveður og stjórnmálin voru að sjálfsögðu meðal helstu myndefna en aðgerðir lögreglu og dómsmál komu einnig oft við sögu. Innlent 4. janúar 2023 09:30
„Eitthvað sem veldur okkur miklum áhyggjum“ Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands, segir ósætti ríkja við íþyngjandi reglur Alþjóðahandknattleikssambandsins sem snerta á Covid-19 fyrir komandi heimsmeistaramót karla. Handbolti 4. janúar 2023 08:01
Kínverjar hóta gagnaðgerðum vegna skimunar ferðamanna á Vesturlöndum Stjórnvöld í Pekíng hafa gagnrýnt fyrirætlanir annarra ríkja um að skima ferðamenn frá Kína og hóta gagnaðgerðum. Kórónuveirubylgja gengur nú yfir Kína, eftir að stjórnvöld þar í landi afléttu sóttvarnaaðgerðum. Erlent 4. janúar 2023 06:52
„Það má ekkert við miklu þegar kerfið er þanið“ Sóttvarnalæknir segir skimanir á landamærum og raðgreiningu vera til skoðunar vegna tilslakana í Kína. Hún segir heilbrigðiskerfin í Evrópu nú undir miklu álagi og ekki mega við miklu meira. Innlent 3. janúar 2023 19:15
Leikmaður danska landsliðsins í einangrun Simon Pytlick, leikmaður danska karlalandsliðsins í handbolta, hefur verið einangraður frá leikmannahópi liðsins vegna Covid-smits. Danir segja þetta varúðarráðstöfun vegna strangra reglna í kringum komandi heimsmeistaramót. Handbolti 3. janúar 2023 11:00
Gáttaður á Covid-reglum: „Eruð þið að reyna að eyðileggja íþróttina okkar?“ Björgvin Páll Gústavsson, leikmaður Vals og landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta, er afar ósáttur við þær reglur sem verða í gildi á komandi heimsmeistaramóti í handbolta er varða Covid-19. Handbolti 3. janúar 2023 09:43
Strákarnir okkar í fimm daga sóttkví ef þeir smitast Kórónuveirustress mun áfram herja á liðin sem keppa um heimsmeistaratitilinn í handbolta seinna í þessum mánuði. Handbolti 3. janúar 2023 08:00
Verður frábært að fá heilt rekstrarár án takmarkana vegna Covid-19 Það verður frábært að fá heilt rekstrarár án takmarkana vegna Covid-19 heimsfaraldursins, segir Hrefna Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri veitingastaðarins ROK við Frakkastíg, um komandi ár. Innherji 2. janúar 2023 11:02
AGS spáir samdrætti hjá þriðjungi ríkja heims Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir þriðjung ríkja heims standa frammi fyrir samdrætti árið 2023. Framkvæmdastjórinn Kristalina Georgieva segir árið munu verða erfiðara en árið 2022. Viðskipti erlent 2. janúar 2023 07:38
Aflétting allra takmarkana vegna heimsfaraldursins eitt það jákvæðasta á árinu Aflétting allra takmarkana vegna Covid-19 heimsfaraldursins var eitt það jákvæðasta sem átti sér stað á árinu sem er að líða, að mati Ara Fenger, formanns Viðskiptaráðs og forstjóra 1912 sem rekur Nathan & Olsen, Ekruna og Emmessís. Fyrirtækið fagnaði 110 ára starfsafmæli á árinu. Innherji 30. desember 2022 09:42
Íhuga að skima úrgangsvatn úr vélum frá Kína Bandarísk yfirvöld eru nú að íhuga að láta rannsaka úrgangsvatn í farþegaþotum sem koma frá Kína til að reyna að finna og greina ný möguleg afbrigði kórónuveirunnar. Erlent 30. desember 2022 07:24
Aukið sjálfræði starfsfólks verður áberandi í áherslum vinnustaða 2023 „Ég tel að aukið sjálfræði starfsfólks um hvar það vinnur og hvenær það vinnur verði áberandi í áherslum vinnustaða árið 2023. Þessi þróun hófst í heimsfaraldrinum og mun halda áfram. Auk þess sé ég fyrir mér aukna áhersla á fjölbreytileika og vellíðan,“ segir Ingrid Kuhlman framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar. Atvinnulíf 30. desember 2022 07:01
Þungir dómar yfir öfgamönnum sem ætluðu að ræna ríkisstjóra Forsprakki hóps hægriöfgamanna sem ætlaði að ræna ríkisstjóra Michigan í Bandaríkjunum var dæmdur í rúmlega nítján ára fangelsi í gær. Dómurinn er sá þyngsti í málinu en annar leiðtoga hópsins hlaut sextán ára dóm á þriðjudag. Erlent 29. desember 2022 16:03
„Þetta fer ekki að léttast fyrr en það hlýnar í veðri og vorar“ Mikið álag er í heilbrigðiskerfinu vegna óvenju mikils flensufárs. Landspítali hefur gripið til takmarkana og á heilsugæslustöðvum eru tímar fullbókaðir og löng bið á Læknavaktinni. Framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins biðlar til fólks að leita annarra ráða en að birtast beint á stöðvunum. Ekki er útlit fyrir að ástandið batni fyrr en það fer að hlýna í veðri. Innlent 29. desember 2022 14:00
Engin ákvörðun tekin um landamæraskimun vegna afléttinga í Kína Fleiri ríki bætast í hóp þeirra sem bregðast við frelsi Kínverja með kórónuveiruskimun á landamærum, nú síðast Bandaríkin. Sóttvarnalæknir segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um landamæraskimun hér á landi en að vel sé fylgst með stöðunni. Innlent 29. desember 2022 11:44
Heimsóknir á Landspítalann takmarkaðar við einn gest Frá og með deginum í dag verða heimsóknir á Landspítalann takmarkaðar við einn gest á heimsóknartíma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá farsóttarnefnd spítalans. Innlent 29. desember 2022 08:52