Jafnt í hálfleik á Stamford Bridge Nú hefur verið flautað til hálfleiks á Stamford Bridge í leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeild Evrópu. Ekkert mark er enn komið í leikinn og besta færið átti Didier Drogba hjá Chelsea eftir 15 mínútna leik, en náði ekki að skora. Eiður Smári er í byrjunarliði Barcelona en hefur fengið úr litlu að moða enn sem komið er. Fótbolti 18. október 2006 19:32
Eiður í byrjunarliði Barcelona Nú styttist í að flautað verði til leiks í Meistaradeild Evrópu. Stórleikur kvöldsins er viðureign Chelsea og Barcelona og verður leikurinn sýndur beint á Sýn. Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona gegn sínum gömlu félögum og tekur við heiðursverðlaunum frá Chelsea fyrir leikinn. Fótbolti 18. október 2006 18:14
Sigur á Bordeaux gæfi okkur meðbyr í deildinni Rafa Benitez vonast innilega eftir sigri á franska liðinu Bordeaux í Meistaradeildinni í kvöld og telur að útisigur í kvöld gæfi liði sínu byr undir báða vængi fyrir erfiðan leik við Manchester United í úrvalsdeildinni á sunnudag. Liverpool er aðeins í tíunda sæti í úrvalsdeildinni. Fótbolti 18. október 2006 17:15
Xavi segir Chelsea í hefndarhug Spænski miðjumaðurinn Xavi hjá Barcelona á von á því að Englandsmeistarar Chelsea séu í hefndarhug í leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld, eftir að spænska liðið sló þá út úr keppninni á síðustu leiktíð. Fótbolti 18. október 2006 16:45
Risaleikir í beinni í kvöld Sjónvarpsstöðvar Sýnar gera Meistaradeild Evrópu góð skil að venju í kvöld, en þá verður á dagskrá einn af leikjum ársins þegar Eiður Smári og félagar í Barcelona sækja fyrrum félaga hans í Chelsea heim á Stamford Bridge klukkan 18:30. Fótbolti 18. október 2006 16:00
Eiður sæmdur verðlaunum fyrir leikinn í kvöld Eiður Smári Guðjohnsen verður sæmdur sérstökum verðlaunum fyrir ár sín hjá Chelsea skömmu fyrir leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld. Það verður stjórnarformaðurinn Bruce Buck sem afhendir Eiði verðlaunagripinn, en landsliðsfyrirliðinn vann tvo Englandsmeistaratitla með félaginu áður en hann gekk í raðir Barcelona í sumar. Fótbolti 18. október 2006 15:26
Við erum miklu betri en Chelsea Victor Valdes hefur nú sent liðsmönnum Chelsea góða ögrun fyrir stórleik liðanna á Stamford Bridge í Meistaradeildinni í kvöld, en markvörðurinn ungi sagði Sky sjónvarpsstöðinni í dag að Barcelona væri einfaldlega betra lið en Chelsea. Fótbolti 18. október 2006 15:19
Van Nistelrooy og Beckham í sögubækurnar Félagarnir Ruud Van Nistelrooy og David Beckham skráðu nöfn sín í sögubækurnar í kvöld í stórsigri Real Madrid á Steua Búkarest. Beckham spilaði sinn 100. leik á ferlinum í keppninni og þá varð Nistelrooy aðeins þriðji leikmaðurinn til að skora 50 mörk í Meistaradeildinni þegar hann skoraði glæsilegt fjórða mark spænska liðsins. Fótbolti 17. október 2006 22:43
Ferguson hrósar fyrirliðanum unga Sir Alex Ferguson hlóð Wayne Rooney hrósi eftir 3-0 sigur Manchester United á FC Kaupmannahöfn í Meistaradeildinni í kvöld, en framherjinn ungi tók við fyrirliðabandinu í fyrsta sinn í fjarveru þeirra Ryan Giggs og Rio Ferdinand. Fótbolti 17. október 2006 22:31
Á von á skemmtilegum leik á morgun Jose Mourinho segist eiga von á skemmtilegum leik þegar hans menn í Chelsea taka á móti Barcelona í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Fótbolti 17. október 2006 22:15
Ánægður með óvænt gengi Celtic Gordon Strachan var að vonum ánægður með sigur sinna manna í Glasgow Celtic á portúgalska liðinu Benfica í Meistaradeildinni í kvöld. Hann segir árangur liðsins til þessa í keppninni framar sínum björtustu vonum. Fótbolti 17. október 2006 22:11
Kennir dómaranum og vallaraðstæðum um tapið Arsene Wenger kennir dómaranum og lélegum vallaraðstæðum um tap Arsenal gegn CSKA Moskvu í Meistaradeildinni í kvöld, en viðurkennir að heimamenn hafi ráðið ferðinni löngum stundum í leiknum. Fótbolti 17. október 2006 21:20
Markasúpa í Meistaradeildinni Það var mikið fjör í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu og menn voru sannarlega á skotskónum á flestum vígstöðvum. Alls voru skoruð 25 mörk í leikjunum 8 í kvöld og það voru leikmenn Porto og Real Madrid sem voru iðnastir við kolann. Fótbolti 17. október 2006 20:36
United yfir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Leikur Manchester United og FC Köbenhavn er sýndur beint á Sýn og þar hafa heimamenn í Manchester 1-0 forystu með marki frá Paul Scholes. Heimamenn hafa verið miklu betri í hálfleiknum en markvörður danska liðsins hefur farið mikinn. Fótbolti 17. október 2006 19:41
Henry skoraði löglegt mark Brasilíumaðurinn Gilberto var afar óhress með tap Arsenal gegn CSKA Moskvu í Meistaradeildinni í kvöld og sagði dómarann hafa dæmt fullkomlega löglegt mark af félaga sínum Thierry Henry. Fótbolti 17. október 2006 19:10
Arsenal tapaði í Moskvu Arsenal varð að sætta sig við 1-0 tap gegn CSKA Moskva í G-riðli Meistaradeildar Evrópu í dag. Mark CSKA skoraði Daniel Carvalho í fyrri hálfleik, en leikurinn var mjög fjörugur. Arsenal sótti grimmt að marki CSKA eftir þetta, en bæði lið fengu reyndar dæmd af sér mörk vegna rangstöðu. Fótbolti 17. október 2006 18:25
Arsenal undir í hálfleik Arsenal er undir 1-0 gegn CSKA Moskvu í fyrsta leik dagsins í Meistardeild Evrópu. Heimamenn hafa verið mjög sprækir með Brasilíumennina Vagner Love og Daniel Carvalho fremsta í flokki, en það var einmitt sá síðarnefndi sem skoraði mark Moskvu með þrumuskoti úr óbeinni aukaspyrnu. Fótbolti 17. október 2006 17:37
Fjórir leikir í beinni á Sýn í dag Rétt er að minna enn og aftur á knattspyrnuveisluna sem verður á sjónvarpsstöðvum Sýnar í dag og í kvöld, en boðið verður upp á fjórar beinar útsendingar frá Meistaradeild Evrópu. Fjörið hefst með leik CSKA Moskva og Arsenal á Sýn klukkan 16:15. Fótbolti 17. október 2006 14:36
Gerrard verður ekki með gegn Bordeaux Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, getur ekki leikið með liðinu gegn Bordeaux í Meistaradeildinni annað kvöld vegna meiðsla á læri sem hann hlaut í leiknum gegn Blackburn um helgina. Gerrard fór því ekki með félögum sínum til Frakklands, en vonir standa til um að hann verði búinn að ná sér fyrir leikinn gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. Fótbolti 17. október 2006 14:18
Hilario er vandanum vaxinn Miðjumaðurinn Joe Cole hjá Chelsea segir að liðið sé ekki á flæðiskeri statt þó þeir Petr Cech og Carlo Cudicini séu meiddir, því þriðji markvörðurinn sé vandanum vaxinn. Hilario heitir sá kappi og gekk í raðir Chelsea í sumar, en hann hefur áður spilað gegn Barcelona í Meistaradeildinni. Enski boltinn 16. október 2006 22:15
Liðið er búið að missa sinn besta leikmann Eiður Smári Guðjohnsen segir að hans menn í Barcelona verði að skora fyrsta markið í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni á miðvikudaginn, því það sé mjög erfitt að lenda undir gegn jafn vel skipulögðu liði og gömlu félögum hans í Chelsea. Hann segist líka vita af hverju Chelsea hefur ekki byrjað mjög vel í ensku úrvalsdeildinni í haust. Fótbolti 16. október 2006 20:45
Denilson í hópnum hjá Arsenal Brasilíski táningurinn Denilson verður í 18 manna leikmannahópi Arsene Wenger fyrir leikinn gegn CSKA Moskvu í Meistaradeildinni á morgun, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 16:15. Denilson er aðeins 18 ára gamall og gekk í raðir enska liðsins frá Sao Paulo í Brasilíu í sumar. Fótbolti 16. október 2006 19:39
Fjórir leikir í beinni á Sýn á morgun Það verður óvenju mikið um dýrðir á sjónvarpsstöðvum Sýnar í vikunni þegar leikjunum í Meistaradeild Evrópu verða gerð góð skil að venju, en boðið verður upp á fjórar beinar útsendingar á morgun. Þetta er vegna þess að leikur CSKA og Arsenal fer fram nokkru fyrr en aðrir leikir og hefst klukkan 16:15 á morgun. Fótbolti 16. október 2006 18:30
Eiður hugsar ekki um að skora á Stamford Bridge Eiður Smári Guðjohnsen er nú að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir viðureign Chelsea og Barcelona á Stamford Bridge á miðvikudagskvöldið. Hann segist væntanlega muni fagna hóflega ef hann nær að skora gegn sínum gömlu félögum, en hefur meiri áhyggjur af vini sínum Petr Cech. Fótbolti 16. október 2006 16:55
Neville og Ronaldo klárir Gary Neville og Cristiano Ronaldo mættu báðir á æfingu hjá Manchester United í morgun og verða því væntanlega klárir í slaginn gegn FC Kaupmannahöfn annað kvöld, en United hefur unnið báða leiki sína í riðlinum til þessa. Gabriel Heinze er þó enn tæpur vegna meiðsla á læri. Fótbolti 16. október 2006 16:41
Hoeness og Mihajlovic í bann Uli Hoeness stjórnarformaður Bayern Munchen og Sinisa Mihajlovic aðstoðarþjálfari Inter Milan voru í dag dæmdir í tveggja leikja bann fyrir að ausa blótsyrðum hvor á annan á leik Inter og Bayern í Meistaradeildinni á dögunum. Fótbolti 6. október 2006 20:15
Úrslitaleikirnir spilaðir í Moskvu og Róm Knattspyrnusamband Evrópu hefur tilkynnt að úrslitaleikirnir í Meistaradeild Evrópu verði háðir í Moskvu árið 2008 og Róm árið eftir. Þá fer úrslitaleikurinn í Evrópukeppni félagsliða árið 2008 fram í Manchester á Englandi og í Istanbul í árið eftir. Fótbolti 4. október 2006 16:55
Inter, eruð þið geðveikir? Ítölsku blöðin vönduðu stjörnum prýddu liði Inter Milan ekki kveðjurnar á síðum sínum í dag eftir að liðið tapaði 2-0 fyrir Bayern Munchen á heimavelli í Meistaradeildinni. Þeim Zlatan Ibrahimovic og Fabio Grosso var báðum vikið af leikvelli í gærkvöldi og það nýtti þýska liðið sér vel, en Inter hefur ekki fengið eitt einasta stig úr fyrstu tveimur leikjum sínum í B-riðli. Fótbolti 28. september 2006 18:57
Eto´o verður frá í allt að þrjá mánuði Illur grunur lækna Evrópumeistara Barcelona frá í gærkvöldi hefur nú verið staðfestur eftir að framherjinn Samuel Eto´o fór í myndatöku í dag og í ljós kom að hann verður frá í allt að þrjá mánuði vegna hnémeiðsla. Eto´o meiddist í leik Werder Bremen og Barcelona í gær, en meiðsli hans gætu þó þýtt að tækifærum Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Katalóníuliðinu ætti eftir að fjölga til muna. Fótbolti 28. september 2006 14:01
Eto´o verður frá í 2-3 mánuði Evrópumeistarar Barcelona hafa orðið fyrir miklu áfalli en skæðasti framherji liðsins, Kamerúninn Samuel Eto´o, meiddist á hné í leiknum gegn Werder Bremen í Meistaradeildinni í kvöld og segist læknir liðsins halda að hann verði frá keppni í tvo til þrjá mánuði fyrir vikið. Fótbolti 27. september 2006 22:05
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti