Grindavík Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Bræðurnir sem saman fagna hundrað ára starfsafmæli hjá sama fyrirtæki segja samstarfið hafa verið einfalt, þægilegt og laust við keppni í þá hálfu öld sem þeir hafa verið samstarfsfélagar. Það hafi sjaldan eða aldrei hvarflað að þeim að skipta um vinnu. Innlent 20.9.2024 20:30 Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Lýðheilsuvísar 2024 verða kynntir á viðburði sem fram fer í Grindavík milli klukkan 11 og 13 í dag. Hægt verður að fylgjast með í beinu streymi. Innlent 20.9.2024 10:31 Heildartjón á mannvirkjum áætlað allt að 16 til 17 milljarðar Heildartjón á mannvirkjum í Grindavík gæti numið allt að 16 til 17 milljörðum króna. Tjón á heimilum í bænum hefur verið metið á 6,5 milljarða króna en enn á eftir að ná utan um tjón á öðrum innviðum, til að mynda atvinnuhúsnæði, hafnarmannvirkjum og veitum. Innlent 12.9.2024 06:28 Matorka fékk samþykkta greiðslustöðvun Héraðsdómur Reykjaness hefur samþykkt beiðni landeldisfyrirtækisins Matorku um greiðslustöðvun. Fyrirtækið fór fram á greiðslustöðvun til að tryggja sanngirni gagnvart öllum kröfuhöfum í yfirstandandi samningum. Viðskipti innlent 10.9.2024 08:34 „Við sáum átta metra ofan í jörðina“ Sprungan sem liggur í gegnum Hópið í Grindavík nær niður á grunnvatn, allt að þrettán metra niður í jörðina. Ekki er öruggt að vera í húsinu og þarf þónokkur vinna að fara fram áður en hægt yrði að hleypa fólki þar inn. Bæjarfulltrúar kynntu sér aðstæður í skemmdum byggingum í Grindavík í dag og menningarmiðstöðin Kvikan var opin í fyrsta sinn í tíu mánuði. Innlent 9.9.2024 20:02 Bein útsending: Hættunni á heitavatnslausum Suðurnesjum afstýrt Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Árni Magnússon, forstjóri ÍSOR, kynna í dag árangur af sérstakri jarðhitaleit á Reykjanesi. Innlent 9.9.2024 15:25 Öllu starfsfólki Northern Light Inn sagt upp Öllu starfsfólki hótelsins Northern Light Inn var sagt upp síðustu mánaðamót eða alls 25 manns. Friðrik Einarsson eigandi hótelsins kallar eftir því að rekstrarstyrkir stjórnvalda til fyrirtækja í Grindavík verði endurskoðaðir. Hann geti aðeins greitt laun með því að hafa hótelið lokað. Á meðan það er lokað verði bókunarstaða áfram léleg. Viðskipti innlent 9.9.2024 14:48 Skoða að breyta Hópinu í safn Bæjarráð Grindavíkur hefur frestað niðurrifi íþróttamiðstöðvarinnar Hópsins og skoðar nú að breyta húsinu í safn. Forseti bæjarstjórnar vill losna við lokunarpósta og hleypa öllum inn í bæinn á næstunni. Innlent 8.9.2024 19:25 Bæjarráð vill opna Grindavík fyrir almenningi Bæjarráð Grindavíkur vill að lokunarpóstar við bæinn verði fjarlægðir og bærinn verði opnaður sem fyrst fyrir almenningi. Forseti bæjarstjórnar segist vilja sýna fólki að bærinn sé ekki vesældin ein. Innlent 8.9.2024 12:35 Hraun gæti náð að Reykjanesbraut á skömmum tíma í næsta gosi Eldfjallafræðingur telur líkur á að hraun nái að Reykjanesbrautinni á nokkrum klukkutímum komi til nýss eldgoss á Reykjanesskaga. Mögulega þurfi að hefja vinnu við að vernda innviði norðan við síðustu gosstöðvar. Innlent 7.9.2024 12:13 Fylla upp í sprungur í von um að hægt verði að opna Grindavík aftur Vinna við sprungufyllingar í Grindavík gengur vel, þó að verkið vinnist seint, að sögn verktaka. Hann er fullviss um að eftir að fyllt verður í sprungur og hættusvæði girt af verði hægt að flytja aftur í bæinn. Innlent 5.9.2024 20:20 „Guðs mildi að þetta hafi stoppað þarna“ „Það er alveg með hreinum ólíkindum að koma að þessu. Hún hefur ekki hreyfst girðingin, en hraunið vafði sér eiginlega utan um hornið þarna,“ segir Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður og Grindvíkingur, um hraun sem stoppaði við hús í Grindavík í janúar á þessu ári. Innlent 5.9.2024 14:18 Reisa 350 metra af girðingum á dag Vinna við að fylla í sprungur og girða af hættuleg svæði í Grindavík er hafin. Tæplega sjö kílómetrar af girðingu verða lagðir. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdunum í október. Innlent 1.9.2024 13:31 Gosið það stærsta til þessa síðan jarðhræringar hófust Eldgosið sem nú stendur yfir á Reykjanesi er það stærsta á Sunhnúksgígaröðinni frá því að jarðhræringar hófust á svæðinu í fyrrahaust. Landris mælist enn í Svartsengi og áfram gýs á svæðinu norðaustan við Stóra-Skógfell. Gasdreifingarspá gerir ráð fyrir að mengun frá eldgosinu auk gróðurelda verði meðal annars í Svartsengi, Reykjanesbæ og í Vogum. Innlent 26.8.2024 15:38 Stærsta gosið til þessa Fagstjóri aflögunar hjá Veðurstofu Íslands, segir eldgosið sem nú stendur yfir á Sundhnúksgígaröðinni vera það stærsta til þessa. Hann segir erfitt að segja til um hve lengi það eigi eftir að vara en að það sé komið í jafnvægi. Innlent 24.8.2024 19:54 Lögreglan kölluð til eftir að Íslendingur var „með kjaft“ Lögreglan var kölluð til við Reykjanesbrautina í dag eftir að Íslendingur hafði verið með skæting og dónaskap við björgunarsveitarfólk sem starfar þar í umboði lögreglunnar á Suðurnesjum við að stjórna umferð og tryggja öryggi við gosstöðvarnar. Innlent 24.8.2024 15:52 Gasmengun leggst yfir Grindavík í dag Eldgosið virðist hafa náð jafnvægi í gærkvöldi og er virknin öll norðan við Stóra-Skógfell. Gasmengun mun berast til suðurs, yfir Grindavík, í dag enda norðlæg átt á gosstöðvunum. Gasmengun við eldstöðina getur farið yfir hættumörk í dag. Innlent 24.8.2024 09:54 Virknin svipuð og jafnvel dregið úr henni Lítið er að frétta af eldgosinu í Sundhnúksgígaröðinni á þriðja degi goss og hefur það náð vissu jafnvægi, að sögn náttúruvársérfræðings. Innlent 24.8.2024 07:32 Fara af neyðarstigi og hleypa fólki í Bláa lónið og til Grindavíkur Starfsemi hefst í Bláa lóninu og hjá Northern Light Inn að öllu óbreyttu í fyrramálið. Þá verður rýmingu Grindavíkur aflétt og íbúum sem og öðrum sem eiga þangað erindi hleypt aftur inn í bæinn. Ríkislögreglustjóri hefur fært almannavarnastig af neyðarstigi niður á hættustig. Verulega hefur dregið úr krafti gossins og hraun rennur ekki suður í átt að Grindavík. Innlent 23.8.2024 17:21 Örfáir starfsmenn fara inn í Svartsengi til að huga að búnaði Birna Lárusdóttir upplýsingafulltrúi HS Orku segir það létti hvernig eldgosið og hraunstreymið er að þróast. Eldgosið hófst í gærkvöldi og gýs enn úr tveimur sprungum við Stóra-Skógfell. Birna segir enga innviði í Svartsengi í hættu og hraunið ekki ógna vatnslögn þeirra frá Lágum. Innlent 23.8.2024 10:39 Fólk farið til vinnu í Svartsengi og Grindavík Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum segir hraun ekki renna í átt að Grindavík og enga innviði í Svartsengi í hættu eins og er. Hraunið sé enn í um 300 metra fjarlægð frá Grindavíkurvegi og að það ekki ógna vatnslögn HS Orku. Innlent 23.8.2024 09:37 Ákveðinn léttir en áfram óvissa Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, segir stöðuna nú vera æði góða miðað við það sem hefði geta verið ef upptök eldgossisins hefðu verið sunnar og nær bænum. Innlent 23.8.2024 08:40 „Við hlaupum í átt að eldgosi á meðan aðrir hlaupa í burtu frá því“ „Hún er fín, miðað við allt og allt,“ sagði Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna, um stöðuna í samtali við Bítið í morgun. „Eldgosið mallar þarna og virknin er mest til norðurs eins og komið hefur fram í fjölmiðlum.“ Innlent 23.8.2024 07:56 Gosið í myndum Ljósmyndarar og tökumenn voru mættir á vettvang um leið og fór að gjósa í gær, eins og þeirra er von og vísa. Hér má finna nokkrar myndir sem sýna gosið og viðbragð við því. Innlent 23.8.2024 06:40 Vaktin: Grindvíkingar fá að snúa aftur Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 í gær í kjölfar öflugrar skjálftahrinu. Gossprungan er um sjö kílómetra löng en ekki virk alla leiðina. Gossprungan nær norðar en í síðustu gosum. Hraun rennur ekki í átt að Grindavík og eru allir helstu innviðir taldir öruggir eins og er. Innlent 23.8.2024 06:28 Hafa áhyggjur af kaldavatnslögn Mælingar benda til að hraunflæði eldgossins sem hófst í Sundhnúksgígaröðinni í kvöld sé um 1.200 til 1.500 rúmmetrar á sekúndu. Gert er ráð fyrir því að hraun nái fljótlega að Grindavíkurvegi. Innlent 23.8.2024 01:55 Dregur úr skjálftavirkni og gossprungan að ná hámarkslengd Náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni telur að gossprungan sé búin að ná hámarkslengd og að byrjað sé að draga úr skjálftavirkni. Innlent 23.8.2024 00:01 Yfirgáfu Grindavík í snarhasti: „Ömurlegt ástand að horfa upp á þetta“ Eiríkur Óli Dagbjartsson og Sólveig Ólafsdóttir voru stödd á heimili sínu í Grindavík þegar eldgos hófst í kvöld. Þau eru nú í Hveragerði en þetta er í annað sinn sem þau þurfa að flýja heimili sitt þegar eldsumbrot hefjast. Innlent 22.8.2024 23:26 Teygir sig frá Grindavík ólíkt fyrri gosum Gossprungan sem opnaðist á Sundhnúksgígaröðinni í kvöld teygir sig nú lengra til norðurs en suðurs og frá Grindavík, ólíkt fyrri gosum. Hraun rennur hratt og er byrjað að nálgast Grindavíkurveg, að sögn náttúruvársérfræðings Veðurstofu Íslands. Innlent 22.8.2024 22:27 Um 1.300 manns í og við Bláa lónið þegar gosið hófst Um 1.300 manns, bæði gestir og starfsfólk, voru í Bláa lóninu við Svartsengi í kvöld þegar rýming hófst vegna eldgossins sem hófst við Sýlingarfell á tíunda tímanum í kvöld. Innlent 22.8.2024 22:23 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 74 ›
Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Bræðurnir sem saman fagna hundrað ára starfsafmæli hjá sama fyrirtæki segja samstarfið hafa verið einfalt, þægilegt og laust við keppni í þá hálfu öld sem þeir hafa verið samstarfsfélagar. Það hafi sjaldan eða aldrei hvarflað að þeim að skipta um vinnu. Innlent 20.9.2024 20:30
Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Lýðheilsuvísar 2024 verða kynntir á viðburði sem fram fer í Grindavík milli klukkan 11 og 13 í dag. Hægt verður að fylgjast með í beinu streymi. Innlent 20.9.2024 10:31
Heildartjón á mannvirkjum áætlað allt að 16 til 17 milljarðar Heildartjón á mannvirkjum í Grindavík gæti numið allt að 16 til 17 milljörðum króna. Tjón á heimilum í bænum hefur verið metið á 6,5 milljarða króna en enn á eftir að ná utan um tjón á öðrum innviðum, til að mynda atvinnuhúsnæði, hafnarmannvirkjum og veitum. Innlent 12.9.2024 06:28
Matorka fékk samþykkta greiðslustöðvun Héraðsdómur Reykjaness hefur samþykkt beiðni landeldisfyrirtækisins Matorku um greiðslustöðvun. Fyrirtækið fór fram á greiðslustöðvun til að tryggja sanngirni gagnvart öllum kröfuhöfum í yfirstandandi samningum. Viðskipti innlent 10.9.2024 08:34
„Við sáum átta metra ofan í jörðina“ Sprungan sem liggur í gegnum Hópið í Grindavík nær niður á grunnvatn, allt að þrettán metra niður í jörðina. Ekki er öruggt að vera í húsinu og þarf þónokkur vinna að fara fram áður en hægt yrði að hleypa fólki þar inn. Bæjarfulltrúar kynntu sér aðstæður í skemmdum byggingum í Grindavík í dag og menningarmiðstöðin Kvikan var opin í fyrsta sinn í tíu mánuði. Innlent 9.9.2024 20:02
Bein útsending: Hættunni á heitavatnslausum Suðurnesjum afstýrt Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Árni Magnússon, forstjóri ÍSOR, kynna í dag árangur af sérstakri jarðhitaleit á Reykjanesi. Innlent 9.9.2024 15:25
Öllu starfsfólki Northern Light Inn sagt upp Öllu starfsfólki hótelsins Northern Light Inn var sagt upp síðustu mánaðamót eða alls 25 manns. Friðrik Einarsson eigandi hótelsins kallar eftir því að rekstrarstyrkir stjórnvalda til fyrirtækja í Grindavík verði endurskoðaðir. Hann geti aðeins greitt laun með því að hafa hótelið lokað. Á meðan það er lokað verði bókunarstaða áfram léleg. Viðskipti innlent 9.9.2024 14:48
Skoða að breyta Hópinu í safn Bæjarráð Grindavíkur hefur frestað niðurrifi íþróttamiðstöðvarinnar Hópsins og skoðar nú að breyta húsinu í safn. Forseti bæjarstjórnar vill losna við lokunarpósta og hleypa öllum inn í bæinn á næstunni. Innlent 8.9.2024 19:25
Bæjarráð vill opna Grindavík fyrir almenningi Bæjarráð Grindavíkur vill að lokunarpóstar við bæinn verði fjarlægðir og bærinn verði opnaður sem fyrst fyrir almenningi. Forseti bæjarstjórnar segist vilja sýna fólki að bærinn sé ekki vesældin ein. Innlent 8.9.2024 12:35
Hraun gæti náð að Reykjanesbraut á skömmum tíma í næsta gosi Eldfjallafræðingur telur líkur á að hraun nái að Reykjanesbrautinni á nokkrum klukkutímum komi til nýss eldgoss á Reykjanesskaga. Mögulega þurfi að hefja vinnu við að vernda innviði norðan við síðustu gosstöðvar. Innlent 7.9.2024 12:13
Fylla upp í sprungur í von um að hægt verði að opna Grindavík aftur Vinna við sprungufyllingar í Grindavík gengur vel, þó að verkið vinnist seint, að sögn verktaka. Hann er fullviss um að eftir að fyllt verður í sprungur og hættusvæði girt af verði hægt að flytja aftur í bæinn. Innlent 5.9.2024 20:20
„Guðs mildi að þetta hafi stoppað þarna“ „Það er alveg með hreinum ólíkindum að koma að þessu. Hún hefur ekki hreyfst girðingin, en hraunið vafði sér eiginlega utan um hornið þarna,“ segir Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður og Grindvíkingur, um hraun sem stoppaði við hús í Grindavík í janúar á þessu ári. Innlent 5.9.2024 14:18
Reisa 350 metra af girðingum á dag Vinna við að fylla í sprungur og girða af hættuleg svæði í Grindavík er hafin. Tæplega sjö kílómetrar af girðingu verða lagðir. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdunum í október. Innlent 1.9.2024 13:31
Gosið það stærsta til þessa síðan jarðhræringar hófust Eldgosið sem nú stendur yfir á Reykjanesi er það stærsta á Sunhnúksgígaröðinni frá því að jarðhræringar hófust á svæðinu í fyrrahaust. Landris mælist enn í Svartsengi og áfram gýs á svæðinu norðaustan við Stóra-Skógfell. Gasdreifingarspá gerir ráð fyrir að mengun frá eldgosinu auk gróðurelda verði meðal annars í Svartsengi, Reykjanesbæ og í Vogum. Innlent 26.8.2024 15:38
Stærsta gosið til þessa Fagstjóri aflögunar hjá Veðurstofu Íslands, segir eldgosið sem nú stendur yfir á Sundhnúksgígaröðinni vera það stærsta til þessa. Hann segir erfitt að segja til um hve lengi það eigi eftir að vara en að það sé komið í jafnvægi. Innlent 24.8.2024 19:54
Lögreglan kölluð til eftir að Íslendingur var „með kjaft“ Lögreglan var kölluð til við Reykjanesbrautina í dag eftir að Íslendingur hafði verið með skæting og dónaskap við björgunarsveitarfólk sem starfar þar í umboði lögreglunnar á Suðurnesjum við að stjórna umferð og tryggja öryggi við gosstöðvarnar. Innlent 24.8.2024 15:52
Gasmengun leggst yfir Grindavík í dag Eldgosið virðist hafa náð jafnvægi í gærkvöldi og er virknin öll norðan við Stóra-Skógfell. Gasmengun mun berast til suðurs, yfir Grindavík, í dag enda norðlæg átt á gosstöðvunum. Gasmengun við eldstöðina getur farið yfir hættumörk í dag. Innlent 24.8.2024 09:54
Virknin svipuð og jafnvel dregið úr henni Lítið er að frétta af eldgosinu í Sundhnúksgígaröðinni á þriðja degi goss og hefur það náð vissu jafnvægi, að sögn náttúruvársérfræðings. Innlent 24.8.2024 07:32
Fara af neyðarstigi og hleypa fólki í Bláa lónið og til Grindavíkur Starfsemi hefst í Bláa lóninu og hjá Northern Light Inn að öllu óbreyttu í fyrramálið. Þá verður rýmingu Grindavíkur aflétt og íbúum sem og öðrum sem eiga þangað erindi hleypt aftur inn í bæinn. Ríkislögreglustjóri hefur fært almannavarnastig af neyðarstigi niður á hættustig. Verulega hefur dregið úr krafti gossins og hraun rennur ekki suður í átt að Grindavík. Innlent 23.8.2024 17:21
Örfáir starfsmenn fara inn í Svartsengi til að huga að búnaði Birna Lárusdóttir upplýsingafulltrúi HS Orku segir það létti hvernig eldgosið og hraunstreymið er að þróast. Eldgosið hófst í gærkvöldi og gýs enn úr tveimur sprungum við Stóra-Skógfell. Birna segir enga innviði í Svartsengi í hættu og hraunið ekki ógna vatnslögn þeirra frá Lágum. Innlent 23.8.2024 10:39
Fólk farið til vinnu í Svartsengi og Grindavík Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum segir hraun ekki renna í átt að Grindavík og enga innviði í Svartsengi í hættu eins og er. Hraunið sé enn í um 300 metra fjarlægð frá Grindavíkurvegi og að það ekki ógna vatnslögn HS Orku. Innlent 23.8.2024 09:37
Ákveðinn léttir en áfram óvissa Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, segir stöðuna nú vera æði góða miðað við það sem hefði geta verið ef upptök eldgossisins hefðu verið sunnar og nær bænum. Innlent 23.8.2024 08:40
„Við hlaupum í átt að eldgosi á meðan aðrir hlaupa í burtu frá því“ „Hún er fín, miðað við allt og allt,“ sagði Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna, um stöðuna í samtali við Bítið í morgun. „Eldgosið mallar þarna og virknin er mest til norðurs eins og komið hefur fram í fjölmiðlum.“ Innlent 23.8.2024 07:56
Gosið í myndum Ljósmyndarar og tökumenn voru mættir á vettvang um leið og fór að gjósa í gær, eins og þeirra er von og vísa. Hér má finna nokkrar myndir sem sýna gosið og viðbragð við því. Innlent 23.8.2024 06:40
Vaktin: Grindvíkingar fá að snúa aftur Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 í gær í kjölfar öflugrar skjálftahrinu. Gossprungan er um sjö kílómetra löng en ekki virk alla leiðina. Gossprungan nær norðar en í síðustu gosum. Hraun rennur ekki í átt að Grindavík og eru allir helstu innviðir taldir öruggir eins og er. Innlent 23.8.2024 06:28
Hafa áhyggjur af kaldavatnslögn Mælingar benda til að hraunflæði eldgossins sem hófst í Sundhnúksgígaröðinni í kvöld sé um 1.200 til 1.500 rúmmetrar á sekúndu. Gert er ráð fyrir því að hraun nái fljótlega að Grindavíkurvegi. Innlent 23.8.2024 01:55
Dregur úr skjálftavirkni og gossprungan að ná hámarkslengd Náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni telur að gossprungan sé búin að ná hámarkslengd og að byrjað sé að draga úr skjálftavirkni. Innlent 23.8.2024 00:01
Yfirgáfu Grindavík í snarhasti: „Ömurlegt ástand að horfa upp á þetta“ Eiríkur Óli Dagbjartsson og Sólveig Ólafsdóttir voru stödd á heimili sínu í Grindavík þegar eldgos hófst í kvöld. Þau eru nú í Hveragerði en þetta er í annað sinn sem þau þurfa að flýja heimili sitt þegar eldsumbrot hefjast. Innlent 22.8.2024 23:26
Teygir sig frá Grindavík ólíkt fyrri gosum Gossprungan sem opnaðist á Sundhnúksgígaröðinni í kvöld teygir sig nú lengra til norðurs en suðurs og frá Grindavík, ólíkt fyrri gosum. Hraun rennur hratt og er byrjað að nálgast Grindavíkurveg, að sögn náttúruvársérfræðings Veðurstofu Íslands. Innlent 22.8.2024 22:27
Um 1.300 manns í og við Bláa lónið þegar gosið hófst Um 1.300 manns, bæði gestir og starfsfólk, voru í Bláa lóninu við Svartsengi í kvöld þegar rýming hófst vegna eldgossins sem hófst við Sýlingarfell á tíunda tímanum í kvöld. Innlent 22.8.2024 22:23