Lög og regla Bruni í rafmagnstöflu í Fnjóskadal Slökkvilið Akureyrar og Þingeyjarsveitar voru kölluð út síðdegis í gær vegna bruna í skúr utan um rafstöð við bæinn Hróarsstaði í Fnjóskadal. Tjón af völdum brunans varð ekki mikið og gekk að sögn lögreglu á Húsavík greiðlega að slökkva eldinn, sem átti upptök sín í rafmagnstöflu. Innlent 13.10.2005 19:24 Auðvelda framsal sakamanna Framsal sakamanna milli norrænu ríkjanna verður auðveldað með samkomulagi dómsmálaráðherra landanna í dag. Þeir ætla að knýja á um skilvirkari lög sem leiði til þess að framsal dæmdra manna eða grunaðra taki skemmri tíma en hingað til. Framsalsreglur milli Norðurlandanna eru í dag einfaldari en á milli annarra landa og verður það nú gert enn einfaldara. Innlent 13.10.2005 19:23 Vilja gagnabanka um barnaníðinga Dómsmálaráðherrar átta helstu iðnríkja heims styðja einróma hugmynd Interpol um stofnun gagnabanka um þekkta barnaníðinga. Ráðherrarnir funda nú í Sheffield. Þeir hvetja lögreglu í ríkjunum að nýta sér slíkan banka til hins ítrasta. Þá hétu þeir því að legga þrjár milljónir evra til verkefnisins svo lögregla geti komið sér upp fullkomnasta tölvubúnaði sem völ er á í baráttunni við barnaníðinga. Innlent 13.10.2005 19:23 Segjast vera á slóð kortasvikara Sérfræðingar í tölvuglæpum telja sig komna á slóð tölvusvikaranna sem náðu upplýsingum af um fjörutíu milljónum krítarkorta nýverið, þar á meðal af um 140 íslenskum kortum að því talið er. Innlent 13.10.2005 19:24 Maður dæmdur fyrir skjalafals Fertugur maður hlaut í gær sex mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að falsa áritun þrítugrar konu á skuldabréf sem hann notaði til að kaupa bíl á bílasölu í Reykjavík. Bréfið var gefið út í júní 2001 og konan óafvitandi komin í ábyrgð fyrir rúmar 1,3 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:24 Bílar verði skoðaðir Eigendur óskoðaðra bíla þurfa að kippa sínum málum í lag ef þeir vilja halda númeraplötunum. Lögreglan í Reykjavík og víðar er nú að veita þeim sem ekki hafa þessi mál á hreinu viðvörun auk þess sem klippt er af bílum þeirra sem augljóslega láta sér ekki segjast. Lögreglan leggur áherslu á að þessir hlutir komist í lag nú þegar sumarferðalögin á vegum landsins eru að hefjast. Innlent 13.10.2005 19:23 Gæsluvarðhald yfir Breta staðfest Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir breskri konu sem grunuð er um ávísanamisferli hér á landi í maí síðastliðnum. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði konuna um miðjan júní í gæsluvarðhald sem renna á út á morgun, 23. júní. Innlent 13.10.2005 19:24 Leitar fjórða manns vegna bílbruna Lögreglan leitar enn fjórða mannsins vegna bíls sem kveikt var í í Heiðmörk í gærmorgun. Þremur ungmennum, 15 til 17 ára, var sleppt í gær eftir að þau játuðu sinn þátt í málinu. Lögreglu var tilkynnt um eldinn á sjötta tímanum í gærmorgun og þegar komið var á staðinn stóð bíllinn, sem hafði verið stolið, í ljósum logum og fjögur ungmenni í nágrenninu. Innlent 13.10.2005 19:23 Ók dópaður um borgina Tvítugur maður hefur verið dæmdur til greiðslu 200.000 króna fyrir margvísleg fíkniefnabrot og fyrir að aka bifreið víða um Reykjavíkurborg um miðjan október í fyrra undir áhrifum slævandi lyfs og fíkniefna. Hann var sviptur ökurétti í þrjá mánuði og þarf að greiða málskostnað upp á rúmar 310.000 krónur. Innlent 13.10.2005 19:24 Jón Gerald mætti í yfirheyrslu Jón Gerald Sullenberger mætti til yfirheyrslu hjá Ríkislögreglustjóra klukkan níu í gærmorgun í tengslum við rannsókn á hugsanlegum fjárdrætti núverandi og fyrrverandi forstjóra Baugs og öðrum mögulegum brotum þeirra gegn fyrirtækinu. Rannsókn lögreglu hefur staðið í tæp þrjú ár, frá ágústlokum 2002. Innlent 13.10.2005 19:24 Íslenskt félag flutti inn Pólverja Í ljós hefur komið að íslenskt fyrirtæki hefur flutt tólf Pólverja hingað til lands á fölskum forsendum, einungis í þeim tilgangi að leigja þá út. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Laun og kjör mannanna voru langt undir lámarkskjörum sem kjarasamningar og íslensk lög kveða á um. Í samningi sem fyrirtækið gerði við Pólverjana sagði að þeir hefðu 480 krónur á tíma í jafnaðarkaup og að þeir þyrftu að vinna 250 vinnustundir á mánuði. Innlent 13.10.2005 19:23 Segja málflutning ASÍ rangan Dularfullt, íslenskt fyrirtæki fékk erlenda verkamenn hingað til lands á fölskum forsendum og braut á þeim lög og kjarasamninga, að mati ASÍ. Þeir nutu engra réttinda og voru látnir búa við aðstæður sem uppfylla engan veginn íslenskar kröfur. Rangur og villandi málflutningur, segja talsmenn fyrirtækisins. Innlent 13.10.2005 19:24 Ungur maður ók á kind sem drapst 25 ára gamall maður ók um klukkan níu í gærmorgun fólksbíl sínum á kind þannig að hún drapst og bíllinn skemmdist. Áreksturinn varð í Holtsmúlasundi, miðja vegu milli Varmahlíðar og Sauðárkróks. Innlent 13.10.2005 19:24 Falsaði undirskrift á skuldabréfi Fertugur maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir skjalafals. Þrír mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára. Maðurinn hefur játað að hafa greitt starfsmönnum bílaumboðs með skuldabréfi með falsaðri undirskrift. Skuldabréfið hljóðaði upp á rúma 1,3 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:23 Gott að ránum hafi ekki fjölgað Afbrotafræðingur hjá Ríkislögreglustjóranum segir ánægjulegt að úttekt sýni að ránum hafi ekki fjölgað þrátt fyrir breytta samfélagsmynd. 36 rán eru framin á Íslandi á ári samkvæmt athugun félagsfræðinema við Háskóla Íslands. Innlent 13.10.2005 19:23 Vildu senda skýr skilaboð Þremeningarnir sem handteknir voru fyrir að sletta grænu skyri á álráðstefnu gesti á Nordica-hóteli segja að ásetningur sinn hafi verið að trufla ráðstefnuna og senda skýr skilaboð til leiðtoga í þungaiðnaði um að Ísland sé ekki eins notalegt hreiður fyrir þá og þeir haldi. Einnig að veita öðrum innblástur til aðgerða gegn því samsæri fyrirtækja og stjórnvalda að svíkja af Íslendingum mikið af stórbrotinni náttúru landsins. Innlent 13.10.2005 19:23 Upplýsingar um rán í gagnabanka Upplýsingar um rán framin á Íslandi síðustu 5 ár verða settar í sérstakan gagnabanka hjá Ríkislögreglustjóra sem mun nýtast við rannsókn ránsmála. Innlent 13.10.2005 19:24 Reynt að koma Pólverjum úr landi Alþýðusamband Íslands vinnur nú í því að tryggja stöðu tólf Pólverja sem búið hafa við slæmar aðstæður og unnið hér á landi á ósæmandi kjörum. ASÍ telur að fyrirtækið sem flutti Pólverjana hingað til lands hafi reynt að koma þeim úr landi svo þeir gætu ekki borið vitni. Innlent 13.10.2005 19:23 Fylgst náið með barnaníðingum Dómsmálaráðherrar iðnveldanna skera á alþjóðlegt tengslanet barnaníðinga með því að setja á laggirnar sameiginlegan gagnagrunn með upplýsingum um þá og framleiðendur barnakláms. Lögreglan á Íslandi fagnar þessu framtaki og telur að það muni auðvelda rannsókn slíkra mála hér á landi. Innlent 13.10.2005 19:24 Grunuð um að hafa kveikt í bíl Lögreglan í Hafnarfirði er með þrjú ungmenni í haldi í tengslum við bílbruna í Heiðmörk í morgun. Lögreglan sá til fólks í fjarska þegar hún kom að brennandi bílnum og hafði hendur í hári þriggja. Þau hafa lítið viljað tjá sig við lögreglu enn sem komið er. Grunur leikur á að málið kunni að tengjast frekari skemmdarverkum á bílum. Innlent 13.10.2005 19:23 Valt við að sturta mold Ökumaður vörubíls meiddist lítillega þegar bíll hans valt á hliðina þar sem hann var að sturta mold í pytt í grennd við Nátthaga í Ölfusi klukkan að ganga 10 í gærmorgun. Innlent 13.10.2005 19:23 Harður árekstur í Kópavogi Harður árekstur varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Beita þurfti klippum til að ná fólki úr annari eða báðum bifreiðunum. Ekki liggur fyrir hvort að slys urðu á fólki að svo stöddu en lögreglan er enn á vettvangi. Innlent 13.10.2005 19:23 Kveikt í bátaskýli í Hafnarfirði Kveikt var í bátaskýli í Hafnarfirði í gærkvöldi og brann það til kaldra kola. Skýlið stóð við Hvaleyrarhæð og var tilkynnt um eldinn á áttunda tímanum. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en skýlið stóð í röð slíkra skýla og var gengið úr skugga um að eldur hefði ekki borist í þau. Innlent 13.10.2005 19:23 Slasaðist lítillega í bílveltu Farþegi slasaðist lítillega þegar bíll valt á Suðurlandsvegi austan við Selfoss í gærkvöldi. Tveir voru í bílnum og var sá sem meiddist farþegi. Báðir voru í bílbelti. Að sögn lögreglu virðist sem ökumaðurinn hafi verið kominn of langt út í hægri vegkantinn og því sveigt snögglega til vinstri með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af þeim megin og hafnaði á hliðinni í skurði. Innlent 13.10.2005 19:23 Kominn úr öndunarvél eftir bílslys Ungi maðurinn sem fluttur var á gjörgæsludeild eftir bílslys í Öxnadal í síðustu viku, er kominn úr öndunarvél. Hann liggur þó enn á gjörgæsludeild. Fjórir ungir karlmenn voru í bílnum sem fór út af veginum, tveir létust en hinir tveir slösuðust alvarlega. Innlent 13.10.2005 19:23 Vörubíll valt á hliðina í Ölfusi Bílstjóri meiddist þegar vörubíll valt á hliðina við Nátthaga í Ölfusi í morgun. Verið var að sturta mold af bílnum þegar pallurinn seig á hliðina og bíllinni með. Ökumaðurinn kvartaði undan eymslum í hálsi og baki og eftir skoðun á heilsugæslustöðinni á Selfossi var hann fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi til nánari rannsóknar. Innlent 13.10.2005 19:23 Gill sleppt á laugardag Hæstiréttur fjallar ekki um kæru Pauls Gills vegna gæsluvarðhalds sem hann var úrskurðaður í því að honum var sleppt á laugardag. Innlent 13.10.2005 19:23 Fimm bíla árekstur Fimm bíla árekstur varð um hálffjögurleytið í gær skammt sunnan við Smáralind, norðan við gatnamót Arnarnesvegar og Reykjanesbrautar Innlent 13.10.2005 19:23 Sumarlöng leit að klámi í tölvum Lögreglan í Reykjavík vinnur enn að rannsókn tveggja mála tengdum misnotkun barna og barnaklámi sem upp komu um miðjan mánuðinn. Annar maðurinn er grunaður um að hafa misnotað og myndaðp fjögur stúlkubörn, en hinn var handtekinn og leitað hjá honum í alþjóðlegum aðgerðum Europol. Innlent 13.10.2005 19:23 36 rán að meðaltali á ári Að meðaltali eru framin 36 rán á Íslandi á ári. Flest rán voru framin árið 1999 en fæst árið 2002. Þetta kemur fram í úttekt sem nemi í félagsfræði við Háskóla Íslands vann fyrir ríkislögreglustjórann. Innlent 13.10.2005 19:23 « ‹ 52 53 54 55 56 57 58 59 60 … 120 ›
Bruni í rafmagnstöflu í Fnjóskadal Slökkvilið Akureyrar og Þingeyjarsveitar voru kölluð út síðdegis í gær vegna bruna í skúr utan um rafstöð við bæinn Hróarsstaði í Fnjóskadal. Tjón af völdum brunans varð ekki mikið og gekk að sögn lögreglu á Húsavík greiðlega að slökkva eldinn, sem átti upptök sín í rafmagnstöflu. Innlent 13.10.2005 19:24
Auðvelda framsal sakamanna Framsal sakamanna milli norrænu ríkjanna verður auðveldað með samkomulagi dómsmálaráðherra landanna í dag. Þeir ætla að knýja á um skilvirkari lög sem leiði til þess að framsal dæmdra manna eða grunaðra taki skemmri tíma en hingað til. Framsalsreglur milli Norðurlandanna eru í dag einfaldari en á milli annarra landa og verður það nú gert enn einfaldara. Innlent 13.10.2005 19:23
Vilja gagnabanka um barnaníðinga Dómsmálaráðherrar átta helstu iðnríkja heims styðja einróma hugmynd Interpol um stofnun gagnabanka um þekkta barnaníðinga. Ráðherrarnir funda nú í Sheffield. Þeir hvetja lögreglu í ríkjunum að nýta sér slíkan banka til hins ítrasta. Þá hétu þeir því að legga þrjár milljónir evra til verkefnisins svo lögregla geti komið sér upp fullkomnasta tölvubúnaði sem völ er á í baráttunni við barnaníðinga. Innlent 13.10.2005 19:23
Segjast vera á slóð kortasvikara Sérfræðingar í tölvuglæpum telja sig komna á slóð tölvusvikaranna sem náðu upplýsingum af um fjörutíu milljónum krítarkorta nýverið, þar á meðal af um 140 íslenskum kortum að því talið er. Innlent 13.10.2005 19:24
Maður dæmdur fyrir skjalafals Fertugur maður hlaut í gær sex mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að falsa áritun þrítugrar konu á skuldabréf sem hann notaði til að kaupa bíl á bílasölu í Reykjavík. Bréfið var gefið út í júní 2001 og konan óafvitandi komin í ábyrgð fyrir rúmar 1,3 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:24
Bílar verði skoðaðir Eigendur óskoðaðra bíla þurfa að kippa sínum málum í lag ef þeir vilja halda númeraplötunum. Lögreglan í Reykjavík og víðar er nú að veita þeim sem ekki hafa þessi mál á hreinu viðvörun auk þess sem klippt er af bílum þeirra sem augljóslega láta sér ekki segjast. Lögreglan leggur áherslu á að þessir hlutir komist í lag nú þegar sumarferðalögin á vegum landsins eru að hefjast. Innlent 13.10.2005 19:23
Gæsluvarðhald yfir Breta staðfest Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir breskri konu sem grunuð er um ávísanamisferli hér á landi í maí síðastliðnum. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði konuna um miðjan júní í gæsluvarðhald sem renna á út á morgun, 23. júní. Innlent 13.10.2005 19:24
Leitar fjórða manns vegna bílbruna Lögreglan leitar enn fjórða mannsins vegna bíls sem kveikt var í í Heiðmörk í gærmorgun. Þremur ungmennum, 15 til 17 ára, var sleppt í gær eftir að þau játuðu sinn þátt í málinu. Lögreglu var tilkynnt um eldinn á sjötta tímanum í gærmorgun og þegar komið var á staðinn stóð bíllinn, sem hafði verið stolið, í ljósum logum og fjögur ungmenni í nágrenninu. Innlent 13.10.2005 19:23
Ók dópaður um borgina Tvítugur maður hefur verið dæmdur til greiðslu 200.000 króna fyrir margvísleg fíkniefnabrot og fyrir að aka bifreið víða um Reykjavíkurborg um miðjan október í fyrra undir áhrifum slævandi lyfs og fíkniefna. Hann var sviptur ökurétti í þrjá mánuði og þarf að greiða málskostnað upp á rúmar 310.000 krónur. Innlent 13.10.2005 19:24
Jón Gerald mætti í yfirheyrslu Jón Gerald Sullenberger mætti til yfirheyrslu hjá Ríkislögreglustjóra klukkan níu í gærmorgun í tengslum við rannsókn á hugsanlegum fjárdrætti núverandi og fyrrverandi forstjóra Baugs og öðrum mögulegum brotum þeirra gegn fyrirtækinu. Rannsókn lögreglu hefur staðið í tæp þrjú ár, frá ágústlokum 2002. Innlent 13.10.2005 19:24
Íslenskt félag flutti inn Pólverja Í ljós hefur komið að íslenskt fyrirtæki hefur flutt tólf Pólverja hingað til lands á fölskum forsendum, einungis í þeim tilgangi að leigja þá út. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Laun og kjör mannanna voru langt undir lámarkskjörum sem kjarasamningar og íslensk lög kveða á um. Í samningi sem fyrirtækið gerði við Pólverjana sagði að þeir hefðu 480 krónur á tíma í jafnaðarkaup og að þeir þyrftu að vinna 250 vinnustundir á mánuði. Innlent 13.10.2005 19:23
Segja málflutning ASÍ rangan Dularfullt, íslenskt fyrirtæki fékk erlenda verkamenn hingað til lands á fölskum forsendum og braut á þeim lög og kjarasamninga, að mati ASÍ. Þeir nutu engra réttinda og voru látnir búa við aðstæður sem uppfylla engan veginn íslenskar kröfur. Rangur og villandi málflutningur, segja talsmenn fyrirtækisins. Innlent 13.10.2005 19:24
Ungur maður ók á kind sem drapst 25 ára gamall maður ók um klukkan níu í gærmorgun fólksbíl sínum á kind þannig að hún drapst og bíllinn skemmdist. Áreksturinn varð í Holtsmúlasundi, miðja vegu milli Varmahlíðar og Sauðárkróks. Innlent 13.10.2005 19:24
Falsaði undirskrift á skuldabréfi Fertugur maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir skjalafals. Þrír mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára. Maðurinn hefur játað að hafa greitt starfsmönnum bílaumboðs með skuldabréfi með falsaðri undirskrift. Skuldabréfið hljóðaði upp á rúma 1,3 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:23
Gott að ránum hafi ekki fjölgað Afbrotafræðingur hjá Ríkislögreglustjóranum segir ánægjulegt að úttekt sýni að ránum hafi ekki fjölgað þrátt fyrir breytta samfélagsmynd. 36 rán eru framin á Íslandi á ári samkvæmt athugun félagsfræðinema við Háskóla Íslands. Innlent 13.10.2005 19:23
Vildu senda skýr skilaboð Þremeningarnir sem handteknir voru fyrir að sletta grænu skyri á álráðstefnu gesti á Nordica-hóteli segja að ásetningur sinn hafi verið að trufla ráðstefnuna og senda skýr skilaboð til leiðtoga í þungaiðnaði um að Ísland sé ekki eins notalegt hreiður fyrir þá og þeir haldi. Einnig að veita öðrum innblástur til aðgerða gegn því samsæri fyrirtækja og stjórnvalda að svíkja af Íslendingum mikið af stórbrotinni náttúru landsins. Innlent 13.10.2005 19:23
Upplýsingar um rán í gagnabanka Upplýsingar um rán framin á Íslandi síðustu 5 ár verða settar í sérstakan gagnabanka hjá Ríkislögreglustjóra sem mun nýtast við rannsókn ránsmála. Innlent 13.10.2005 19:24
Reynt að koma Pólverjum úr landi Alþýðusamband Íslands vinnur nú í því að tryggja stöðu tólf Pólverja sem búið hafa við slæmar aðstæður og unnið hér á landi á ósæmandi kjörum. ASÍ telur að fyrirtækið sem flutti Pólverjana hingað til lands hafi reynt að koma þeim úr landi svo þeir gætu ekki borið vitni. Innlent 13.10.2005 19:23
Fylgst náið með barnaníðingum Dómsmálaráðherrar iðnveldanna skera á alþjóðlegt tengslanet barnaníðinga með því að setja á laggirnar sameiginlegan gagnagrunn með upplýsingum um þá og framleiðendur barnakláms. Lögreglan á Íslandi fagnar þessu framtaki og telur að það muni auðvelda rannsókn slíkra mála hér á landi. Innlent 13.10.2005 19:24
Grunuð um að hafa kveikt í bíl Lögreglan í Hafnarfirði er með þrjú ungmenni í haldi í tengslum við bílbruna í Heiðmörk í morgun. Lögreglan sá til fólks í fjarska þegar hún kom að brennandi bílnum og hafði hendur í hári þriggja. Þau hafa lítið viljað tjá sig við lögreglu enn sem komið er. Grunur leikur á að málið kunni að tengjast frekari skemmdarverkum á bílum. Innlent 13.10.2005 19:23
Valt við að sturta mold Ökumaður vörubíls meiddist lítillega þegar bíll hans valt á hliðina þar sem hann var að sturta mold í pytt í grennd við Nátthaga í Ölfusi klukkan að ganga 10 í gærmorgun. Innlent 13.10.2005 19:23
Harður árekstur í Kópavogi Harður árekstur varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Beita þurfti klippum til að ná fólki úr annari eða báðum bifreiðunum. Ekki liggur fyrir hvort að slys urðu á fólki að svo stöddu en lögreglan er enn á vettvangi. Innlent 13.10.2005 19:23
Kveikt í bátaskýli í Hafnarfirði Kveikt var í bátaskýli í Hafnarfirði í gærkvöldi og brann það til kaldra kola. Skýlið stóð við Hvaleyrarhæð og var tilkynnt um eldinn á áttunda tímanum. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en skýlið stóð í röð slíkra skýla og var gengið úr skugga um að eldur hefði ekki borist í þau. Innlent 13.10.2005 19:23
Slasaðist lítillega í bílveltu Farþegi slasaðist lítillega þegar bíll valt á Suðurlandsvegi austan við Selfoss í gærkvöldi. Tveir voru í bílnum og var sá sem meiddist farþegi. Báðir voru í bílbelti. Að sögn lögreglu virðist sem ökumaðurinn hafi verið kominn of langt út í hægri vegkantinn og því sveigt snögglega til vinstri með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af þeim megin og hafnaði á hliðinni í skurði. Innlent 13.10.2005 19:23
Kominn úr öndunarvél eftir bílslys Ungi maðurinn sem fluttur var á gjörgæsludeild eftir bílslys í Öxnadal í síðustu viku, er kominn úr öndunarvél. Hann liggur þó enn á gjörgæsludeild. Fjórir ungir karlmenn voru í bílnum sem fór út af veginum, tveir létust en hinir tveir slösuðust alvarlega. Innlent 13.10.2005 19:23
Vörubíll valt á hliðina í Ölfusi Bílstjóri meiddist þegar vörubíll valt á hliðina við Nátthaga í Ölfusi í morgun. Verið var að sturta mold af bílnum þegar pallurinn seig á hliðina og bíllinni með. Ökumaðurinn kvartaði undan eymslum í hálsi og baki og eftir skoðun á heilsugæslustöðinni á Selfossi var hann fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi til nánari rannsóknar. Innlent 13.10.2005 19:23
Gill sleppt á laugardag Hæstiréttur fjallar ekki um kæru Pauls Gills vegna gæsluvarðhalds sem hann var úrskurðaður í því að honum var sleppt á laugardag. Innlent 13.10.2005 19:23
Fimm bíla árekstur Fimm bíla árekstur varð um hálffjögurleytið í gær skammt sunnan við Smáralind, norðan við gatnamót Arnarnesvegar og Reykjanesbrautar Innlent 13.10.2005 19:23
Sumarlöng leit að klámi í tölvum Lögreglan í Reykjavík vinnur enn að rannsókn tveggja mála tengdum misnotkun barna og barnaklámi sem upp komu um miðjan mánuðinn. Annar maðurinn er grunaður um að hafa misnotað og myndaðp fjögur stúlkubörn, en hinn var handtekinn og leitað hjá honum í alþjóðlegum aðgerðum Europol. Innlent 13.10.2005 19:23
36 rán að meðaltali á ári Að meðaltali eru framin 36 rán á Íslandi á ári. Flest rán voru framin árið 1999 en fæst árið 2002. Þetta kemur fram í úttekt sem nemi í félagsfræði við Háskóla Íslands vann fyrir ríkislögreglustjórann. Innlent 13.10.2005 19:23