Umfjöllun: Strákarnir felldir í Tékklandi Kristinn Páll Teitsson í Plzen skrifar 16. nóvember 2014 14:12 Kolbeinn Sigþórsson og Emil Hallfreðsson svekktir í leikslok. Vísir/Daníel Íslenska liðinu var kippt niður á jörðina á ný eftir frábæra byrjun í undankeppni Evrópumótsins í 1-2 tapi gegn Tékklandi í Plzen í kvöld. Þrátt fyrir sannkallaða draumabyrjun þegar Ragnar Sigurðsson kom Íslandi yfir voru Tékkarnir einfaldlega sterkari í dag og áttu sigurinn skilið. Spennan fyrir leiknum var gríðarleg, tæplega sjö hundruð Íslendingar voru mættir til Plzen til fylgjast með leiknum og létu þeir vel í sér heyra á meðan leiknum stóð. Greinilegt var að tékkneska liðið ætlaði ekki að vanmeta íslenska liðið og náðu þeir undirtökunum í upphafi leiks. Reyndu þeir ítrekað að sækja upp vinstri kantinn og lentu leikmenn íslenska liðsins í erfiðleikum að stöðva fyrirliða tékkneska liðsins, Tomas Rosicky. Sjá einnig: Mörkin úr leiknum Tékkland fékk fyrsta færi leiksins þegar framherji liðsins, David Lafata, fékk gott skallafæri í miðjum vítateig íslenska liðsins en Hannes Þór Halldórsson í marki íslenska liðsins var vel á verði og varði. Þetta virtist vekja íslenska liðið en aðeins einni mínútu síðar náði íslenska liðið forystunni. Aron Einar Gunnarsson átti þá langt innkast sem Kolbeinn Sigþórsson skallaði yfir Petr Cech og náði Birkir Bjarnason á síðustu stundu að skalla boltann aftur inn í markteig áður en boltinn fór útaf vellinum. Þar var Ragnar einn á auðum sjó og skallaði hann boltann í autt netið. Glæsilegt mark og gríðarlega mikilvægt, staðan eitt núll fyrir Íslandi og íslensku stuðningsmennirnir tóku heldur betur við sér. Tékknesku leikmennirnir héldu áfram að stýra leiknum og fengu góð færi til að jafna metin á næstu mínútum en Hannes stóð vakt sína gríðarlega vel í markinu og bjargaði liðsfélögum sínum á ögurstundu. Kolbeinn var nálægt því að bæta við marki rétt fyrir lok fyrri hálfleiks en varnarmenn tékkneska landsliðsins náðu að komast fyrir skot hans á síðustu stundu. Þegar allt virtist stefna í að Ísland færi með eins marks forskot inn í hálfleik kom jöfnunarmark Tékka með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks. Úr aukaspyrnu kom fyrirgjöf á fjærstöng sem Daniel Pudil sendi aftur inn í markteig og þar var Pavel Kadarábek galopinn og skallaði boltann í þaknetið. Gríðarlega svekkjandi mark en Wolfgang Stark, dómari leiksins, flautaði til hálfleiks á meðan fagnaðarlætum Tékka stóð. Heimamenn héldu áfram að pressa og náðu forskotinu þegar korter var liðið af seinni hálfleik eftir mikla pressu. Jaroslav Pasil átti þá slaka fyrirgjöf sem hrökk af Jóni Daða Böðvarssyni í Hannes Þór og í netið. Gríðarlega svekkjandi mark en verðskuldað eftir þunga pressu tékkneska liðsins. Þetta virtist vekja strákana til lífsins en aðeins þremur mínútum seinna var Gylfi Þór Sigurðsson hársbreidd frá því að jafna metin. Boltinn datt fyrir Gylfa í vítateig tékkneska liðsins og reyndi hann lúmskt skot sem small í stönginni. Tékkneska liðið var nálægt því að gera út um leikinn á sjötugustu mínútu þegar Kári Árnason bjargaði á línu eftir skalla frá Michal Kadlec. Hannes Þór missti fyrirgjöf fyrir fætur Kadlec en Kári var vel staðsettur og náði að bjarga á síðustu stundu. Íslenska liðið færði sig framar á völlinn eftir markið og fékk varamaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson besta færi Íslands þegar boltinn datt fyrir hann í vítateig Tékklands en Cech sá við honum með heimsklassa markvörslu. Íslensku leikmennirnir reyndu hvað þeir gátu á lokamínútum leiksins að minnka muninn en tékkneska liðið spilaði sterkan varnarleik og náði að halda út og tryggja sigurinn. Tékkland er með fullt hús stiga í A-riðlinum eftir leikinn en Ísland situr í 2. sæti með níu stig eftir fjóra leiki. EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira
Íslenska liðinu var kippt niður á jörðina á ný eftir frábæra byrjun í undankeppni Evrópumótsins í 1-2 tapi gegn Tékklandi í Plzen í kvöld. Þrátt fyrir sannkallaða draumabyrjun þegar Ragnar Sigurðsson kom Íslandi yfir voru Tékkarnir einfaldlega sterkari í dag og áttu sigurinn skilið. Spennan fyrir leiknum var gríðarleg, tæplega sjö hundruð Íslendingar voru mættir til Plzen til fylgjast með leiknum og létu þeir vel í sér heyra á meðan leiknum stóð. Greinilegt var að tékkneska liðið ætlaði ekki að vanmeta íslenska liðið og náðu þeir undirtökunum í upphafi leiks. Reyndu þeir ítrekað að sækja upp vinstri kantinn og lentu leikmenn íslenska liðsins í erfiðleikum að stöðva fyrirliða tékkneska liðsins, Tomas Rosicky. Sjá einnig: Mörkin úr leiknum Tékkland fékk fyrsta færi leiksins þegar framherji liðsins, David Lafata, fékk gott skallafæri í miðjum vítateig íslenska liðsins en Hannes Þór Halldórsson í marki íslenska liðsins var vel á verði og varði. Þetta virtist vekja íslenska liðið en aðeins einni mínútu síðar náði íslenska liðið forystunni. Aron Einar Gunnarsson átti þá langt innkast sem Kolbeinn Sigþórsson skallaði yfir Petr Cech og náði Birkir Bjarnason á síðustu stundu að skalla boltann aftur inn í markteig áður en boltinn fór útaf vellinum. Þar var Ragnar einn á auðum sjó og skallaði hann boltann í autt netið. Glæsilegt mark og gríðarlega mikilvægt, staðan eitt núll fyrir Íslandi og íslensku stuðningsmennirnir tóku heldur betur við sér. Tékknesku leikmennirnir héldu áfram að stýra leiknum og fengu góð færi til að jafna metin á næstu mínútum en Hannes stóð vakt sína gríðarlega vel í markinu og bjargaði liðsfélögum sínum á ögurstundu. Kolbeinn var nálægt því að bæta við marki rétt fyrir lok fyrri hálfleiks en varnarmenn tékkneska landsliðsins náðu að komast fyrir skot hans á síðustu stundu. Þegar allt virtist stefna í að Ísland færi með eins marks forskot inn í hálfleik kom jöfnunarmark Tékka með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks. Úr aukaspyrnu kom fyrirgjöf á fjærstöng sem Daniel Pudil sendi aftur inn í markteig og þar var Pavel Kadarábek galopinn og skallaði boltann í þaknetið. Gríðarlega svekkjandi mark en Wolfgang Stark, dómari leiksins, flautaði til hálfleiks á meðan fagnaðarlætum Tékka stóð. Heimamenn héldu áfram að pressa og náðu forskotinu þegar korter var liðið af seinni hálfleik eftir mikla pressu. Jaroslav Pasil átti þá slaka fyrirgjöf sem hrökk af Jóni Daða Böðvarssyni í Hannes Þór og í netið. Gríðarlega svekkjandi mark en verðskuldað eftir þunga pressu tékkneska liðsins. Þetta virtist vekja strákana til lífsins en aðeins þremur mínútum seinna var Gylfi Þór Sigurðsson hársbreidd frá því að jafna metin. Boltinn datt fyrir Gylfa í vítateig tékkneska liðsins og reyndi hann lúmskt skot sem small í stönginni. Tékkneska liðið var nálægt því að gera út um leikinn á sjötugustu mínútu þegar Kári Árnason bjargaði á línu eftir skalla frá Michal Kadlec. Hannes Þór missti fyrirgjöf fyrir fætur Kadlec en Kári var vel staðsettur og náði að bjarga á síðustu stundu. Íslenska liðið færði sig framar á völlinn eftir markið og fékk varamaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson besta færi Íslands þegar boltinn datt fyrir hann í vítateig Tékklands en Cech sá við honum með heimsklassa markvörslu. Íslensku leikmennirnir reyndu hvað þeir gátu á lokamínútum leiksins að minnka muninn en tékkneska liðið spilaði sterkan varnarleik og náði að halda út og tryggja sigurinn. Tékkland er með fullt hús stiga í A-riðlinum eftir leikinn en Ísland situr í 2. sæti með níu stig eftir fjóra leiki.
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira