Schalke skoraði fjögur mörk á Bernabéu en Real komst áfram | Sjáið mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. mars 2015 17:09 Klaas-Jan Huntelaar. Vísir/AFP Evrópumeistarar Real Madrid eru komnir áfram í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta en frammistaða liðsins á Bernabéu í kvöld var þó langt frá því að vera sannfærandi þar sem spænska liðið skreið áfram eftir 4-3 tap á heimavelli á móti Schalke 04. Flestir bjuggust ekki við miklu af liði Schalke 04 í leiknum en frábær frammistaða þýska liðsins dugaði næstum því enda vantaði liðið bara eitt mark til að senda Real Madrid út úr Meistaradeildinni. Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir Real Madrid í kvöld og það gerði Hollendingurinn Klaas-Jan Huntelaar líka fyrir Schalke. Schalke byrjaði leikinn mjög vel á móti hálfsofandi liði Real Madrid og þýska liðið var búið að fá eitt gott færi þegar Christian Fuchs skoraði fyrsta mark leiksins á tuttugustu mínútu og kom Schalke-liðinu í 1-0. Markið var því búið að liggja í loftinu. Það tók Real Madrid aðeins fimm mínútur að jafna metin en Cristiano Ronaldo skoraði þá með fallegum skalla eftir hornspyrnu frá Toni Kroos. Þýska liðið var ekkert að láta þetta mark slá sig út af laginu og Klaas-Jan Huntelaar kom Schalke aftur yfir á 40. mínútu eða aðeins nokkrum sekúndum efir að hann átti þrumuskot í samskeytin. Örstuttu síðar fylgdi Hollendingurinn eftir skoti félaga sína og skoraði á móti sínum gömlu félögum. Cristiano Ronaldo var hinsvegar einn af fáum með lífsmarki í liði Real Madrid í fyrri hálfleiknum og hann jafnaði metin aftur á 45. mínútu þegar hann skallaði inn fyrirgjöf frá Fábio Coentrao. Karim Benzema kom Real Madrid yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar hann skoraði þriðja mark spænska liðsins á 53. mínútu en Leroy Sané, sem er 19 ára strákur sem var að spila sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni, jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar. Klaas-Jan Huntelaar skoraði fjórða mark Schalke og sitt annað mark á 85. mínútu og setti þá mikla spennu í leikinn enda þurfti þýska liðið þá bara eitt mark til viðbótar til að fara áfram á fleiri mörkum á útivelli. Iker Casillas, markvörður Real Madrid, var betri en enginn í lokin og varði meðal annars frá Benedikt Höwedes en þýska liðið pressaði á lokakaflanum. Real Madrid hélt út en með naumundum þó og leikur liðsins verður örugglega harðlega gagnrýndur í spænsku blöðunum eftir leikinn.Schalke kemst í 1-0 á móti Real Madrid Ronaldo jafnar fyrir Real Madrid Klaas-Jan Huntelaar skorar gegn gömlu félögunum Ronaldo jafnar aftur fyrir Real Madrid Karim Benzema skorar fyrir Real Madrid Sané jafnaði í sínum fyrsta Meistaradeildarleik Klaas-Jan Huntelaar með sitt annað mark Meistaradeild Evrópu Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira
Evrópumeistarar Real Madrid eru komnir áfram í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta en frammistaða liðsins á Bernabéu í kvöld var þó langt frá því að vera sannfærandi þar sem spænska liðið skreið áfram eftir 4-3 tap á heimavelli á móti Schalke 04. Flestir bjuggust ekki við miklu af liði Schalke 04 í leiknum en frábær frammistaða þýska liðsins dugaði næstum því enda vantaði liðið bara eitt mark til að senda Real Madrid út úr Meistaradeildinni. Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir Real Madrid í kvöld og það gerði Hollendingurinn Klaas-Jan Huntelaar líka fyrir Schalke. Schalke byrjaði leikinn mjög vel á móti hálfsofandi liði Real Madrid og þýska liðið var búið að fá eitt gott færi þegar Christian Fuchs skoraði fyrsta mark leiksins á tuttugustu mínútu og kom Schalke-liðinu í 1-0. Markið var því búið að liggja í loftinu. Það tók Real Madrid aðeins fimm mínútur að jafna metin en Cristiano Ronaldo skoraði þá með fallegum skalla eftir hornspyrnu frá Toni Kroos. Þýska liðið var ekkert að láta þetta mark slá sig út af laginu og Klaas-Jan Huntelaar kom Schalke aftur yfir á 40. mínútu eða aðeins nokkrum sekúndum efir að hann átti þrumuskot í samskeytin. Örstuttu síðar fylgdi Hollendingurinn eftir skoti félaga sína og skoraði á móti sínum gömlu félögum. Cristiano Ronaldo var hinsvegar einn af fáum með lífsmarki í liði Real Madrid í fyrri hálfleiknum og hann jafnaði metin aftur á 45. mínútu þegar hann skallaði inn fyrirgjöf frá Fábio Coentrao. Karim Benzema kom Real Madrid yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar hann skoraði þriðja mark spænska liðsins á 53. mínútu en Leroy Sané, sem er 19 ára strákur sem var að spila sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni, jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar. Klaas-Jan Huntelaar skoraði fjórða mark Schalke og sitt annað mark á 85. mínútu og setti þá mikla spennu í leikinn enda þurfti þýska liðið þá bara eitt mark til viðbótar til að fara áfram á fleiri mörkum á útivelli. Iker Casillas, markvörður Real Madrid, var betri en enginn í lokin og varði meðal annars frá Benedikt Höwedes en þýska liðið pressaði á lokakaflanum. Real Madrid hélt út en með naumundum þó og leikur liðsins verður örugglega harðlega gagnrýndur í spænsku blöðunum eftir leikinn.Schalke kemst í 1-0 á móti Real Madrid Ronaldo jafnar fyrir Real Madrid Klaas-Jan Huntelaar skorar gegn gömlu félögunum Ronaldo jafnar aftur fyrir Real Madrid Karim Benzema skorar fyrir Real Madrid Sané jafnaði í sínum fyrsta Meistaradeildarleik Klaas-Jan Huntelaar með sitt annað mark
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira