Atletico Madrid í úrslit Meistaradeildarinnar Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. maí 2016 20:30 Atletico Madrid er komið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir 2-1 tap gegn Bayern í kvöld í stórkostlegum leik. Fyrri leikur liðanna fór 1-0 í Madrid og Atletico fer því í úrslit á útivallarmarkinu. Andstæðingur Atletico í úrslitaleiknum verður annað hvort Real Madrid eða Man. City. Það tók Bayern 30 mínútur að brjóta Atletico niður. Þá skoraði Xabi Alonso beint úr aukaspyrnu. Lukkan var reyndar með honum í liði því boltinn fór af Jose Maria Gimenez og breytti því um stefnu. Aðeins fjórum mínútum síðar var Gimenez aftur í eldlínunni er hann braut á Javi Martinez og víti dæmt. Thomas Müller tók vítið en Jan Oblak varði frá honum. Það voru aðeins nokkrar mínútur liðnar af síðari hálfleik er Antoine Griezmann slapp í gegnum vörn Bayern eftir laglega sendingu frá Fernando Torres. Hann lagði boltann smekklega í netið. Hann virkaði þó ansi nærri því að vera rangstæður. 1-1 og það þýddi að Bayern yrði að skora tvö mörk í viðbót til þess að komast í úrslitaleikinn. Bæjarar gáfust ekki upp og rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok náði Robert Lewandowski að skalla boltann í netið og setja allt í háaloft. Átta mínútum fyrir leikslok var brotið á Fernando Torres og vítaspyrna dæmd. Glórulaus dómur þar sem brotið var klárlega utan vítateigs. Réttlætinu var síðan fullnægt er Manuel Neuer varði vítaspyrnu Torres. Bayern sótti grimmt undir lokin en náði ekki að skora. Fyrsta mark leiksins má sjá hér að ofan en hin mörkin hér að neðan.Griezmann jafnar. Lewandowski kemur Bayern í 2-1. Meistaradeild Evrópu Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira
Atletico Madrid er komið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir 2-1 tap gegn Bayern í kvöld í stórkostlegum leik. Fyrri leikur liðanna fór 1-0 í Madrid og Atletico fer því í úrslit á útivallarmarkinu. Andstæðingur Atletico í úrslitaleiknum verður annað hvort Real Madrid eða Man. City. Það tók Bayern 30 mínútur að brjóta Atletico niður. Þá skoraði Xabi Alonso beint úr aukaspyrnu. Lukkan var reyndar með honum í liði því boltinn fór af Jose Maria Gimenez og breytti því um stefnu. Aðeins fjórum mínútum síðar var Gimenez aftur í eldlínunni er hann braut á Javi Martinez og víti dæmt. Thomas Müller tók vítið en Jan Oblak varði frá honum. Það voru aðeins nokkrar mínútur liðnar af síðari hálfleik er Antoine Griezmann slapp í gegnum vörn Bayern eftir laglega sendingu frá Fernando Torres. Hann lagði boltann smekklega í netið. Hann virkaði þó ansi nærri því að vera rangstæður. 1-1 og það þýddi að Bayern yrði að skora tvö mörk í viðbót til þess að komast í úrslitaleikinn. Bæjarar gáfust ekki upp og rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok náði Robert Lewandowski að skalla boltann í netið og setja allt í háaloft. Átta mínútum fyrir leikslok var brotið á Fernando Torres og vítaspyrna dæmd. Glórulaus dómur þar sem brotið var klárlega utan vítateigs. Réttlætinu var síðan fullnægt er Manuel Neuer varði vítaspyrnu Torres. Bayern sótti grimmt undir lokin en náði ekki að skora. Fyrsta mark leiksins má sjá hér að ofan en hin mörkin hér að neðan.Griezmann jafnar. Lewandowski kemur Bayern í 2-1.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira