Umfjöllun og myndir: Ísland - Tyrkland 2-0 | Strákarnir hver öðrum betri í sannfærandi sigri Smári Jökull Jónsson á Laugardalsvelli skrifar 9. október 2016 20:30 Íslensku strákarnir fagna marki Theodórs Elmars. vísir/ernir Karlalandslið Íslands vann frábæran sigur á Tyrkjum í undankeppni heimsmeistaramótsins á Laugardalsvellinum í kvöld. Lokatölur urðu 2-0 og komu bæði mörkin í fyrri hálfleik. Frammistaða Íslands í kvöld var frábær og sigurinn fyllilega sanngjarn. Íslenska liðið kom mikið grimmara til leiks undan vindinum og baráttan var til fyrirmyndar með fyrirliðann Gylfa Sigurðsson úti um allan völl, drífandi sína menn áfram. Tyrkir virtust ekki kunna við íslenska haustveðrið því þeir komust varla í sókn og voru undir í flestum návígjum. Fyrsta alvöru færið kom á 12.mínútu þegar Alfreð Finnbogason var allt í einu einn á auðum sjó við vítateiginn. Alfreð var hins vegar allt of lengi að athafna sig, reyndi að leika á varnarmann Tyrkja og færið rann út í sandinn.vísir/vilhelmKærkomið sjálfsmark Jóhann Berg Guðmundsson var frábær á hægri kantinum í fyrri hálfleik og hann sýndi hvað eftir annað frábær tilþrif. Sá eini af Tyrkjunum sem sýndi eitthvað sóknarlega var Emre Mor, „Litli Messi“, en augljóst er að hann býr yfir miklum hæfileikum. Hann komst hins vegar lítið áleiðis gegn íslensku vörninni. Á 42. mínútu kom fyrsta markið. Gylfi og Jóhann Berg spiluðu frábærlega saman á hægri kantinum og Jóhann kom boltanum til Theódórs Elmars Bjarnasonar fyrir utan teiginn. Theódór Elmar átti skot sem fór í varnarmann Tyrkja, breytti um stefnu og endaði í netinu. Sjálfsmark og Ísland komið yfir. Tveimur mínútum síðar dró svo aftur til tíðinda. Miðvörðurinn Kári Árnason átti skalla úr vörninni yfir alla leikmenn Tyrkja og skyndilega var Alfreð kominn einn í gegn. Í þetta sinn var hann ekkert að hika og kláraði færið frábærlega, tók boltann á lofti og Babacan í marki Tyrklands átti ekki möguleika.Gríðarleg vinnusemi um allan völl Seinni hálfleikur hófst á svipaðan hátt og sá fyrri. Íslendingar voru mikið grimmari og maður sá langar leiðir hversu mikið íslensku leikmennina langaði að vinna tyrkneska liðið Tyrkir voru búnir að gera allar þrjár skiptingar sínar eftir 67 mínútur en það breytti engu. Vinnusemin í íslenska liðinu var frábær og tyrknesku leikmennirnir fengu engan frið til að skapa sér færi þegar þeir voru með boltann. Síðustu mínútur leiksins voru fremur tíðindalitlar og 2-0 sigur Íslands staðreynd sem þar með eru komnir með 7 stig í riðlinum og eru jafnir Króötum að stigum í tveimur efstu sætum riðilsins. Króatar þó með betri markatölu. Úkraínumenn hafa fimm stig eftir sigur á Kósóvó í dag en Tyrkir eru með 2 stig í fjórða sætinu.vísir/andri marinóTheodór Elmar fagnar fyrsta markinu.vísir/andri marinóvísir/anton brinkÞað var mikil stemmning á Laugardalsvellinum í kvöld.vísir/andri marinó HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira
Karlalandslið Íslands vann frábæran sigur á Tyrkjum í undankeppni heimsmeistaramótsins á Laugardalsvellinum í kvöld. Lokatölur urðu 2-0 og komu bæði mörkin í fyrri hálfleik. Frammistaða Íslands í kvöld var frábær og sigurinn fyllilega sanngjarn. Íslenska liðið kom mikið grimmara til leiks undan vindinum og baráttan var til fyrirmyndar með fyrirliðann Gylfa Sigurðsson úti um allan völl, drífandi sína menn áfram. Tyrkir virtust ekki kunna við íslenska haustveðrið því þeir komust varla í sókn og voru undir í flestum návígjum. Fyrsta alvöru færið kom á 12.mínútu þegar Alfreð Finnbogason var allt í einu einn á auðum sjó við vítateiginn. Alfreð var hins vegar allt of lengi að athafna sig, reyndi að leika á varnarmann Tyrkja og færið rann út í sandinn.vísir/vilhelmKærkomið sjálfsmark Jóhann Berg Guðmundsson var frábær á hægri kantinum í fyrri hálfleik og hann sýndi hvað eftir annað frábær tilþrif. Sá eini af Tyrkjunum sem sýndi eitthvað sóknarlega var Emre Mor, „Litli Messi“, en augljóst er að hann býr yfir miklum hæfileikum. Hann komst hins vegar lítið áleiðis gegn íslensku vörninni. Á 42. mínútu kom fyrsta markið. Gylfi og Jóhann Berg spiluðu frábærlega saman á hægri kantinum og Jóhann kom boltanum til Theódórs Elmars Bjarnasonar fyrir utan teiginn. Theódór Elmar átti skot sem fór í varnarmann Tyrkja, breytti um stefnu og endaði í netinu. Sjálfsmark og Ísland komið yfir. Tveimur mínútum síðar dró svo aftur til tíðinda. Miðvörðurinn Kári Árnason átti skalla úr vörninni yfir alla leikmenn Tyrkja og skyndilega var Alfreð kominn einn í gegn. Í þetta sinn var hann ekkert að hika og kláraði færið frábærlega, tók boltann á lofti og Babacan í marki Tyrklands átti ekki möguleika.Gríðarleg vinnusemi um allan völl Seinni hálfleikur hófst á svipaðan hátt og sá fyrri. Íslendingar voru mikið grimmari og maður sá langar leiðir hversu mikið íslensku leikmennina langaði að vinna tyrkneska liðið Tyrkir voru búnir að gera allar þrjár skiptingar sínar eftir 67 mínútur en það breytti engu. Vinnusemin í íslenska liðinu var frábær og tyrknesku leikmennirnir fengu engan frið til að skapa sér færi þegar þeir voru með boltann. Síðustu mínútur leiksins voru fremur tíðindalitlar og 2-0 sigur Íslands staðreynd sem þar með eru komnir með 7 stig í riðlinum og eru jafnir Króötum að stigum í tveimur efstu sætum riðilsins. Króatar þó með betri markatölu. Úkraínumenn hafa fimm stig eftir sigur á Kósóvó í dag en Tyrkir eru með 2 stig í fjórða sætinu.vísir/andri marinóTheodór Elmar fagnar fyrsta markinu.vísir/andri marinóvísir/anton brinkÞað var mikil stemmning á Laugardalsvellinum í kvöld.vísir/andri marinó
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira