Umfjöllun: Malta - Ísland 0-2 | Strákarnir gerðu það sem til þurfti á Möltu | Sjáðu mörkin Stefán Árni Pálsson skrifar 15. nóvember 2016 20:00 Arnór Ingvi Traustaon skoraði sitt fimmta mark í tólf landsleikjum. vísir/getty Íslands vann 2-0 sigur á Möltu í vináttulandsleik sem fram fór á Qali-vellinum í kvöld. Arnór Ingvi Traustason og Sverrir Ingason gerðu sitt markið hvor í leiknum og komu þau bæði í síðari hálfleiknum. Leikurinn fór hálf rólega af stað í Möltu og voru bæði lið lengi að finna taktinn. Íslendingar meira með boltann frá fyrstu mínútum en til að byrja með var Viðar Örn Kjartansson eini sóknarmaður íslenska liðsins sem var með lífsmarki. Hann fékk nokkur fín færi en náði ekki að koma boltanum í netið. Þegar leið á fyrri hálfleikinn batnaði leikur Íslands til muna og fékk Elías Már til að mynda fínt færi þegar um tíu mínútur voru eftir af hálfleiknum. Þá fékk hann sendingu inn í vítateig heimamanna frá Arnóri Smárasyni og náði fínum skalla á markið. Hogg, markvörður Maltverja, varði einfaldlega stórkostlega. Heilt yfir náði íslenska liðið sér ekki á strik í fyrri hálfleiknum og var staðan 0-0 í hálfleik. Íslenska liðið fékk draumabyrjun í síðari hálfleiknum og það tók Arnór Ingva Traustason aðeins tvær mínútur að koma Íslandi í 1-0. Arnór fékk boltann inni í vítateig Maltverja, snéri sér við á punktinum og þrumaði boltanum í vinstra hornið, alveg óverjandi fyrir Hogg í markinu. Þegar leið á síðari hálfleikinn fóru byrjunarliðsmenn að koma inn af bekknum og hafði það í raun lítil áhrif á leik liðsins. Íslensku strákarnir sýndu í kvöld að liðið getur fagmannlega unnið mótherja sem þeir eiga að vinna. Þegar stundarfjórðungur var eftir að leiknum skallaði Sverrir Ingason boltann í netið eftir hornspyrnu frá Jóhanni Bergi Guðmundssyni. Fínasta Blikamark en fátt markvergt átti sér stað út leikinn og niðurstaðan því þægilegur 2-0 sigur Íslands. Ísland mætir Kósavó ytra í undankeppni HM í mars á næsta ári. Nú taka við nokkrir frímánuðir frá landsliðsverkefnum. Leikurinn í kvöld var síðasti landsleikur Íslands á árinu 2016, án efa besta landsliðsár íslensks karlalandsliðs í knattspyrnu en liðið komst í 8-liða úrslit á EM í Frakklandi.Malta 0-1 Ísland Malta 0-2 Ísland Íslenski boltinn Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira
Íslands vann 2-0 sigur á Möltu í vináttulandsleik sem fram fór á Qali-vellinum í kvöld. Arnór Ingvi Traustason og Sverrir Ingason gerðu sitt markið hvor í leiknum og komu þau bæði í síðari hálfleiknum. Leikurinn fór hálf rólega af stað í Möltu og voru bæði lið lengi að finna taktinn. Íslendingar meira með boltann frá fyrstu mínútum en til að byrja með var Viðar Örn Kjartansson eini sóknarmaður íslenska liðsins sem var með lífsmarki. Hann fékk nokkur fín færi en náði ekki að koma boltanum í netið. Þegar leið á fyrri hálfleikinn batnaði leikur Íslands til muna og fékk Elías Már til að mynda fínt færi þegar um tíu mínútur voru eftir af hálfleiknum. Þá fékk hann sendingu inn í vítateig heimamanna frá Arnóri Smárasyni og náði fínum skalla á markið. Hogg, markvörður Maltverja, varði einfaldlega stórkostlega. Heilt yfir náði íslenska liðið sér ekki á strik í fyrri hálfleiknum og var staðan 0-0 í hálfleik. Íslenska liðið fékk draumabyrjun í síðari hálfleiknum og það tók Arnór Ingva Traustason aðeins tvær mínútur að koma Íslandi í 1-0. Arnór fékk boltann inni í vítateig Maltverja, snéri sér við á punktinum og þrumaði boltanum í vinstra hornið, alveg óverjandi fyrir Hogg í markinu. Þegar leið á síðari hálfleikinn fóru byrjunarliðsmenn að koma inn af bekknum og hafði það í raun lítil áhrif á leik liðsins. Íslensku strákarnir sýndu í kvöld að liðið getur fagmannlega unnið mótherja sem þeir eiga að vinna. Þegar stundarfjórðungur var eftir að leiknum skallaði Sverrir Ingason boltann í netið eftir hornspyrnu frá Jóhanni Bergi Guðmundssyni. Fínasta Blikamark en fátt markvergt átti sér stað út leikinn og niðurstaðan því þægilegur 2-0 sigur Íslands. Ísland mætir Kósavó ytra í undankeppni HM í mars á næsta ári. Nú taka við nokkrir frímánuðir frá landsliðsverkefnum. Leikurinn í kvöld var síðasti landsleikur Íslands á árinu 2016, án efa besta landsliðsár íslensks karlalandsliðs í knattspyrnu en liðið komst í 8-liða úrslit á EM í Frakklandi.Malta 0-1 Ísland Malta 0-2 Ísland
Íslenski boltinn Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira