Lewandowski bjargaði Bæjurum í Berlín Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. febrúar 2017 16:28 Lewandowski er kominn með 16 mörk í þýsku deildinni. vísir/getty Robert Lewandowski bjargaði stigi fyrir Bayern München þegar liðið mætti Herthu Berlin í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 1-1. Bosníski framherjinn Vedad Ibisevic kom heimamönnum yfir á 21. mínútu og það mark virtist ætla að duga Berlínarliðinu til sigurs. Lewandowski var á öðru máli og jafnaði metin þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Bayern er með átta stiga forskot á toppi deildarinnar. RB Leipzig getur minnkað forskot Bæjara niður í fimm stig með sigri á Borussia Mönchengladbach á morgun. Dortmund er komið upp í 3. sæti deildarinnar eftir öruggan 3-0 sigur á Wolfsburg á heimavelli. Lukasz Piszczek og Ousmane Dembele voru á skotskónum auk þess sem Jeffrey Bruma, varnarmaður Wolfsburg, skoraði sjálfsmark. Aron Jóhannsson sat allan tímann á varamannabekknum þegar Werder Bremen vann 0-2 útisigur á Mainz 05. Með sigrinum komst Bremen upp úr fallsæti. Hoffenheim heldur áfram að gera góða hluti en í dag vann liðið 2-0 sigur á botnliði Darmstadt. Andrej Kramaric skoraði bæði mörkin. Hoffenheim er í 4. sæti deildarinnar og hefur aðeins tapað tveimur leikjum í vetur. Þá fóru tvö rauð spjöld á loft í 0-2 útisigri Ingolstadt á Frankfurt.Úrslitin í dag: Hertha Berlin 1-1 Bayern München Dortmund 3-0 Wolfsburg Mainz 0-2 Werder Bremen Hoffenheim 2-0 Darmstadt Frankfurt 0-2 Ingolstadt Þýski boltinn Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Handbolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira
Robert Lewandowski bjargaði stigi fyrir Bayern München þegar liðið mætti Herthu Berlin í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 1-1. Bosníski framherjinn Vedad Ibisevic kom heimamönnum yfir á 21. mínútu og það mark virtist ætla að duga Berlínarliðinu til sigurs. Lewandowski var á öðru máli og jafnaði metin þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Bayern er með átta stiga forskot á toppi deildarinnar. RB Leipzig getur minnkað forskot Bæjara niður í fimm stig með sigri á Borussia Mönchengladbach á morgun. Dortmund er komið upp í 3. sæti deildarinnar eftir öruggan 3-0 sigur á Wolfsburg á heimavelli. Lukasz Piszczek og Ousmane Dembele voru á skotskónum auk þess sem Jeffrey Bruma, varnarmaður Wolfsburg, skoraði sjálfsmark. Aron Jóhannsson sat allan tímann á varamannabekknum þegar Werder Bremen vann 0-2 útisigur á Mainz 05. Með sigrinum komst Bremen upp úr fallsæti. Hoffenheim heldur áfram að gera góða hluti en í dag vann liðið 2-0 sigur á botnliði Darmstadt. Andrej Kramaric skoraði bæði mörkin. Hoffenheim er í 4. sæti deildarinnar og hefur aðeins tapað tveimur leikjum í vetur. Þá fóru tvö rauð spjöld á loft í 0-2 útisigri Ingolstadt á Frankfurt.Úrslitin í dag: Hertha Berlin 1-1 Bayern München Dortmund 3-0 Wolfsburg Mainz 0-2 Werder Bremen Hoffenheim 2-0 Darmstadt Frankfurt 0-2 Ingolstadt
Þýski boltinn Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Handbolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira