Fyrsta tapið hjá Söru og Þóru - Kristianstad vann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. maí 2014 15:00 Sara Björk Gunnarsdóttir. Vísir/Arnþór
FC Rosengård tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu í dag þegar liðið lá á útivelli á móti Linköping. Annað Íslendingalið, Kristianstad, komst hinsvegar aftur á sigurbraut eftir sigur á botnliðinu. Sara Björk Gunnarsdóttir og Þóra Björg Helgadóttir spiluðu allan leikinn fyrir FC Rosengård sem tapaði 2-0 á útivelli á móti Linköpings FC. Rosengård var búið að vinna þrjá fyrstu leiki sína á tímabilinu. Bæði mörk Linköping komu á sex mínútna kafla í upphafi seinni hálfleiksins og skömmu eftir seinna markið fékk Sara Björk gult spjald. Elísabet Gunnarsdóttir stýrði Kristianstad til 2-0 sigurs á AIK FF á útivelli. Sif Atladóttir og Elísa Viðarsdóttir voru báðar í byrjunarliðinu, Elísa spilaði allan leikinn en Sif fór útaf á 84. mínútu. Mia Carlsson (22. mínúta) og Linnea Liljegärd (63. mínúta) skoruðu mörk Kristianstad í leiknum. Kristianstad var búið að tapa tveimur leikjum í röð en komst nú aftur á sigurbraut. AIK FF liðið hefur tapað fyrstu fjórum leikjum sínum og situr í botnsætinu.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira