Íslendingar draga úr utanlandsferðum Birgir Olgeirsson skrifar 6. ágúst 2019 13:48 Frá Keflavíkurflugvelli. Vísir/vilhelm
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 231 þúsund í júlímánuði, eða um 47 þúsund færri en í júlí árið 2018. Fækkunin milli ára nemur sautján prósentum að því er fram kemur á vef Ferðamálastofu. Hefur fækkun verið alla aðra mánuði frá áramótum, í janúar fækkaði brottförum um 5,8%, í febrúar um 6,9%, í mars um 1,7%, í apríl um 18,5%, um 23,6% í maí og 16,7% í júní. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í júlí eða 28,3% brottfara og fækkaði þeim um 36,2% milli ára. Frá áramótum hefur um 1,1 milljón erlendra farþega farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 13,4% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í júlí tilkomnar vegna Bandaríkjamanna sem fyrr segir. Þjóðverjar voru í öðru sæti en brottfarir þeirra voru 19 þúsund talsins eða 7,9% færri en í júlí árið áður. Í þriðja sæti voru brottfarir Frakka, um tólf þúsund talsins og fækkaði þeim um 3,9% milli ára.Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Kínverja (4,9% af heild), Breta (4,9% af heild), Pólverja (4,4% af heild), Kanadamanna (4,1% af heild), Dana (3,2% af heild), Spánverja (3,0% af heild) og Svía (2,5% af heild). Um 60 þúsund Íslendingar fóru utan í júlí í ár eða 8,9% færri en í júlí 2018. Frá áramótum hafa um 367 þúsund Íslendingar farið utan eða 5,6% færri en á sama tímabili í fyrra.
Fréttir af flugi Mest lesið Domino's hækkar verð á þriðjudagstilboðinu Viðskipti innlent Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Viðskipti erlent Vilja selja öll bílastæðahús borgarinnar Viðskipti innlent Leggja meiri áherslu á Prís og segja upp starfsmönnum Viðskipti innlent Ekki brenna út á aðventunni Atvinnulíf Afgangur á viðskiptajöfnuði tæplega helmingi minni milli ára Viðskipti innlent Níu teymi kynntu verkefni sín í Startup Tourism 2024 Viðskipti innlent Gunnars loksins selt Viðskipti innlent 75 sagt upp í þremur hópuppsögnum Viðskipti innlent Tveimur verslunum Krambúðarinnar lokað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja selja öll bílastæðahús borgarinnar Domino's hækkar verð á þriðjudagstilboðinu Afgangur á viðskiptajöfnuði tæplega helmingi minni milli ára Níu teymi kynntu verkefni sín í Startup Tourism 2024 Leggja meiri áherslu á Prís og segja upp starfsmönnum Fjárfestingararmur Samherja bætir við sig í Högum Gunnars loksins selt Tveimur verslunum Krambúðarinnar lokað 75 sagt upp í þremur hópuppsögnum Kristjana nýr framkvæmdastjóri hjá Sýn Uppsagnir hjá þjónustumiðstöð Íslenskrar erfðagreiningar Tryggja tólf milljarða króna fjármögnun Hafa samið við Fossvélar um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu „Við megum ekki gleyma að lifa og njóta sko“ Sekta Festi um 750 milljónir vegna N1-samrunans Verðbólga hjaðnaði minna en búist var við og útlitið er svartara Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Landsvirkjun kaupir vindmyllur fyrir tuttugu milljarða Tóku fyrstu skóflustunguna að einu stærsta vinnsluhúsi landsins Steyptu fyrsta gullmolann Verðbólgan komin undir fimm prósent Gengið frá kaupum Haga á færeyska verslanarisanum Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Helena til Íslandssjóða Two Birds verður Aurbjörg Hafa sótt milljarð í nýtt hlutafé Ósætti með vinnubrögð Blackbox sem virðist á barmi gjaldþrots Hrókeringar í framkvæmdastjórn Eimskips Sjá meira