Viðskipti innlent

Níu teymi kynntu verk­efni sín í Startup Tour­ism 2024

Atli Ísleifsson skrifar
111
Klak

Níu teymi kynntu verkefni sín á sviði ferðaþjónustu í viðskiptahraðalnum Startup Tourism 2024 á Hótel Reykjavík Natura í síðustu viku þar sem saman var kominn hópur fjárfesta og bakhjarla.

Hraðallinn er nú haldinn í fyrsta sinn síðan 2019 en það er Klak – Icelandic Startups sem stendur fyrir honum.

Í tilkynningu er haft eftir Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Klak, að það sjáist greinilega að þrátt fyrir að Ísland sé svona framarlega í heiminum í ferðaþjónustu er sannarlega rúm til framfara þegar skapandi fólk komi saman með reynsluboltum í greininni.

Teymin níu sem kynntu afraksturinn eru:

  • Iceland Cover Verkefnið snýst um að gefa erlendum ferðamönnum færi á að leigja sér góðan útivistarfatnað á hagkvæmu verði á meðan á dvöl sinni stendur.
  • Alheimur Alheimur er vísindasetur sem inniheldur gagnvirkt og áhugavert efni um eðli vísinda og tækni. Í Alheimi er skemmtun og fræðsla samþætt svo upplifun verði einstök.
  • PickMeUp PMU er sérsniðinn hugbúnaður fyrir ferðaþjónustu sem eykur utanumhald í skutlþjónustu fyrir ferðamenn. Notandinn getur nýtt sér leiðarvísi sem auðveldar honum að finna sína stoppistöð og tryggir að hann sé á réttum stað. Innstimplunin sýnir fram á að kúnninn hafi verið mættur á réttum tíma og réttum stað ef svo skyldi að rútan færi án hans.
  • Guyde Guyde er raddstýrt leiðsöguapp sem, með hjálp spunagreindar og talgervilstækni, veitir ferðalöngum á einka- og bílaleigubílum félagsskap og leiðsögn í samræmi við staðsetningu þeirra og persónulegar óskir.
  • NordTemp Norræn atvinnumiðstöð sem tengir fyrirtæki í ferðaþjónustu við hæft starfsfólk.
  • Vettvangurinn straumlínulagar ráðningarferli fyrir störf þar sem vinnutími og vaktir eru sveigjanlegar og tryggir að fyrirtæki geti fljótt fundið hæft starfsfólk þegar þau þurfa mest á því að halda.
  • HotSheep HotSheep einbeitir sér að svokölluðum last-minute bókunum á upplifunum. Fyllt er upp í ferðir með því að bjóða hvetjandi afslætti þegar það er stutt í brottför. Með þessu fær ferðaskipuleggjandinn betri nýtingu og ferðamaðurinn fær betra verð.
  • Adventure Tours Adventure Tours áforma að gera nýjan áfangastað á Suðurlandi, nánar tiltekið Reynisfjall við Vík í Mýrdal. Ætlunin er að bæta aðgengi og öryggi með merkingum og stikum fyrir hjóla og göngufólk. Bæta aðgengi með rútuferðum uppi á fjall. (líka fyrir hreyfihamlaða) Bæta öryggi með því að hafa áningarstað upp á fjalli með salerni og veitingum.
  • Snotra Sustainability Snotra er að þróa gervigreindarlausn byggða á SaaS til að styrkja ferðaþjónustuna, tryggja samræmi við sjálfbærnistefnu ESB og iðnaðarstaðla með gagnasöfnun og dreifðri, gagnvirkri þjálfun sem miðar að því að auka heildarþátttöku í sjálfbærni í ferðaþjónustu.
  • True Arctic Travel True Arctic Travel ferðaþjónusta miðar að því að ferðafólk geti notið Artískrar náttúru (Norðurslóða) og ferðalaga þar með sjálfbærum hætti og án þess að skapa átroðning á þeim stöðum sem ferðast er um.

Hægt er að horfa á kynningarnar á vef verkefnisins.

Klak

Klak





Fleiri fréttir

Sjá meira


×