Grindavík Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Grindavíkurnefnd segir hættu á að bærinn fari í greiðsluþrot á næsta ári verði ekki brugðist við. Bærinn geti verið rekinn í 1,5 til tveggja milljarða halla á næsta ári. Bæjarstjórn Grindavíkur skorar á þingmenn að samþykkja lagabreytingar sem varða afkomu og húsnæðismál Grindvíkinga sem allra fyrst og á yfirstandandi þingi. Innlent 1.11.2024 08:28 Þakklátur Grindvíkingum fyrir traustið Sigurður Sigurðsson ljósmyndari og björgunarsveitarmaður, betur þekktur sem Siggi Sig, segist gríðarlega þakklátur íbúum Grindavíkur fyrir traustið í hans garð en hann gaf á dögunum út ljósmyndabókina Reykjanes vaknar. Um er að ræða bók með ljósmyndum og stuttum frásögnum af atburðum á Reykjanesi frá janúar 2020 til haustsins 2024. Lífið 26.10.2024 20:02 Heilt ár af samfelldu landrisi í Svartsengi Nú um helgina er ár frá því að landris hófst í Svartsengi. Landrisið hófst af miklum krafti 27. október í fyrra og hefur innstreymi kviku inn í jarðskorpuna nú verið samfellt í heilt ár. Innlent 26.10.2024 14:16 Stuðningslán leysi ekki vanda fyrirtækja í Grindavík Birgitta Rán Friðfinnsdóttir bæjarfulltrúi Miðflokksins í Grindavík er ekki ánægð með frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármála- og efnahagsráðherra um stuðningslán til fyrirtækja í Grindavík. Birgitta segir lán ekki leysa vanda fyrirtækjanna og kallar eftir alvöru aðgerðum. Innlent 23.10.2024 21:27 Karlmaður á níræðisaldri lést í Bláa lóninu Karlmaður á níræðisaldri lést í Bláa lóninu í kvöld. Í tilkynningu frá Bláa lóninu kemur fram að viðbragðsaðilar voru kallaðir að Bláa Lóninu á sjöunda tímanum í kvöld vegna erlends ferðamanns á níræðisaldri sem hafði misst meðvitund. Innlent 23.10.2024 20:53 Tileinkar lagið Grindvíkingum Tónlistarmaðurinn Geir Ólafsson gaf nýverið út lagið „Bærinn okkar“ sem hann tileinkar Grindvíkingum. Hann segir að hugur hans sé sérstaklega hjá börnunum sem hafa verið rifin upp með rótum frá vinum sínum. Tónlist 23.10.2024 15:00 Stuðningslán upp á allt að 49 milljónir króna Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um stuðningslán við atvinnurekendur í Grindavík. Markmið laganna eru að viðhalda atvinnustarfsemi í bænum eða aðstoða resktraraaðila við að byggja upp starfsemi annars staðar á landinu. Innlent 22.10.2024 23:30 Neðri óvissumörkum náð í byrjun nóvember Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram með svipuðum hraða og síðustu vikur. Jarðskjálftavirkni hefur aukist lítillega síðustu daga og búast má við að neðri óvissumörkum á rúmmáli kviku verði náð í byrjun nóvember. Innlent 22.10.2024 17:19 Grindavík eins og „Tsjernobyl án kommúnisma“ Grindavíkurbær var opnaður fyrir almenningi klukkan sex í morgun. Bandarískir ferðamenn líkja bænum við Tsjernobyl án kommúnisma en formaður framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur viðurkennir að mistök hafi verið gerð við vinnslu bæklings með mikilvægum upplýsingum um öryggisatriði. Innlent 21.10.2024 20:00 „Hefði kannski verið heppilegra að allt væri komið“ Formaður Grindavíkurnefndar segir nefndina hafa lagt áherslu á að setja upp aðvörunarskilti inni í bænum. Hann tekur ekki nema að litlu leyti undir gagnrýni lögreglustjóra um skort á upplýsingagjöf en ugglaust hefði verið heppilegra að komin væru skilti fyrir utan bæinn. Innlent 21.10.2024 16:21 Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segist ekki gera stórar athugasemdir við opnun Grindavíkurbæjar, sem varð í dag, en segir þó að upplýsingagjöf til ferðamanna sem hyggist fara í bæinn sé lítil sem engin. Innlent 21.10.2024 11:08 Grindavíkurbær nú opinn almenningi Grindavíkurbær opnaði klukkan sex í morgun, en aðgengi að bænum hefur verið verulegum takmörkunum háð síðustu misserin vegna eldsumbrota. Ferðir fólks eru á eigin ábyrgð. Innlent 21.10.2024 07:55 Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Frá og með klukkan sex í fyrramálið verður Grindavíkurbær opinn fyrir almennri umferð. Ferðamálastofa biðlar til fólks að sýna ábyrgð og virðingu þar sem enn er töluverð hætta á ferð. Innlent 20.10.2024 13:39 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Það kann að koma einhverjum á óvart en í viðtalsrými sálfræðings er í í hesthúsunum við Sörlaskeið í Hafnarfirði en um er að ræða vinnustað Þorkötlu Elínar Sigurðardóttur á Hlöðuloftinu. Lífið 18.10.2024 10:31 Ekkert bendi til þess að kvikusöfnun sé að hætta Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi hefur haldið áfram á svipuðum hraða síðustu vikuna. Haldi hún áfram á svipuðum hraða og undanfarið er líklegasta sviðsmyndin sú að annað kvikuhlaup og mögulega eldgos verði á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 17.10.2024 16:01 Opna Grindavík öllum eftir helgi Aðgangur að Grindavík verður hindranalaus frá og með mánudagsmorgni samkvæmt ákvörðun framkvæmdanefndar um málefni bæjarins sem kynnt var í dag. Lokað verður aftur ef hættu- eða neyðarstigi verður aftur lýst yfir. Innlent 16.10.2024 13:44 Bein útsending: Verður Grindavík opnuð fyrir öllum? Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ boðar til upplýsingafundar í Tollhúsinu við Tryggvagötu klukkan 13:30. Þar verður farið yfir breytt fyrirkomulag varðandi aðgengi að Grindavík. Beint streymi verður frá fundinum á Vísi. Innlent 16.10.2024 13:11 Boða til upplýsingafundar vegna breytts aðgengis að Grindavík Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ hefur boðað til upplýsingafundar klukkan 13:30 í dag þar sem farið verður yfir breytt fyrirkomulag varðandi aðgengi að Grindavík. Innlent 16.10.2024 09:01 Þurfa að læra að lifa með takmörkunum vegna jarðhræringanna Formaður framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur segir að fólk þurfi að læra að lifa með þeim takmörkunum sem jarðhræringarnar á Reykjanesi setja á sama tíma og unnið sé að því að auka aðgengi að bænum. Tillögur um það verða kynntar á allra næstunni. Innlent 13.10.2024 11:35 Rafeldsneyti vegna íslenskrar tækni dugar til orkuskipta alls skipaflotans Íslenska tæknifyrirtækið Carbon Recycling hefur samið um hönnun rafeldsneytisverksmiðju í Kína. Þetta er einn stærsti samningur í sögu fyrirtækisins en með honum stefnir í að framleiðslumagn vistvæns eldsneytis á grunni íslenskrar tækni dugi til orkuskipta á öllum íslenska skipaflotanum. Innlent 12.10.2024 22:44 Hægir á landrisi GPS-mælingar á Svartsengissvæðinu sýna vísbendingar um að undanfarið hafi smám saman dregið úr hraða á landrisi. Líkanreikningar, sem byggðir eru á GPS-gögnunum, sýna einnig vísbendingar um að örlítið dragi úr kvikuinnflæði undir Svartsengi. Innlent 10.10.2024 16:32 Jakob Birgisson fer á kostum sem Gummi Ben í Körfuboltakvöldi Extra Fyrsti þátturinn af Bónus Körfuboltakvöldi Extra er á dagskrá á Stöð 2 Sport í kvöld. Þátturinn var tekinn upp í hádeginu í dag. Körfubolti 8.10.2024 14:20 „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Bróðir manns sem lést eftir að hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík segir niðurstöður rannsóknar Vinnueftirlitsins á slysinu með því alvarlegra sem hann hafi litið augum. Nú þurfi dómsmálaráðherra að taka undir kröfur fjölskyldunnar um að setja á fót óháða rannsóknarnefnd. Vinnueftirlitið spyr hvort verkefnið hafi verið áhættunnar virði. Innlent 1.10.2024 19:22 Telur lykilspurningum um banaslysið enn ósvarað Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem lést í vinnuslysi í Grindavík þann 10. janúar segir skýrslu Vinnueftirlitsins styðja eðlilega ósk fjölskyldunnar að heildstæð rannsókn verði gerð að aðdraganda slyssins og eftirleik þess. Innlent 1.10.2024 12:35 Ekkert skriflegt áhættumat og spurt hvort vinnan hafi verið áhættunnar virði Vinnueftirlitið segir að slysið í Grindavík í janúar, þar sem maður féll ofan í sprungu, megi rekja til þess að ekki hafi verið til staðar fullnægjandi áhættumat og að ekki hafi farið fram nægilega góð kynning á helstu hættum sem gætu steðjað að þeim sem ynnu á vettvangi. Þá veltir Vinnueftirlitið því fram hvort verkið sem var unnið hafi verið áhættunnar virði. Innlent 1.10.2024 10:50 „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Erindi sem var flutt á ráðstefnunni Menntakvika á fimmtudaginn vakti töluverða úlfúð meðal Grindvíkinga en það bar heitið „Óþekku börnin frá Grindavík“. Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu biður Grindvíkinga afsökunar vegna málsins og segir nafnið, sem sé ekki í neinu samhengi við innihald erindisins, óheppilegt. Innlent 28.9.2024 13:47 „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi á jöfnum hraða. Verkfræðingur í innviðahópi almannavarna segir mikilvægt að undirbúa sig fyrir það að mögulega muni hraun renna yfir Reykjanesbrautina og í átt að Vogum. Mikil verðmæti séu fólgin í því að halda brautinni opinni. Innlent 28.9.2024 12:17 Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Landsréttur hefur sýknað veitingastaðinn Fish house og tryggingafélag hans, Sjóvá, af kröfum manns sem varð fyrir líkamsárás af hendi starfsmanns staðarins á staðnum árið 2019. Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur komist að þeirri niðurstöðu að maðurinn ætti rétt á bótum frá árásarmanninum, tryggingarfélaginu og skemmtistaðnum vegna tjónsins sem hann hlaut af árásinni. Innlent 27.9.2024 11:24 Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Almannavarnarnefnd Suðurnesja utan Grindavíkur í samstarfi við Sveitarfélagið Voga boðar til upplýsingafundar með íbúum Voga í tengslum við jarðhræringar á svæðinu. Á fundinum munu meðal annars fulltrúar Veðurstofunnar og Umhverfisstofnunar vera með erindi og sitja fyrir svörum. Innlent 26.9.2024 19:00 Landris og kvikusöfnun heldur áfram Landris í Svartsengi heldur áfram á svipuðum hraða og verið hefur og hefur kvikusöfnun sömuleiðis haldið áfram á svipuðum hraða og síðustu vikur. Lítil jarðskjálftavirkni í kringum Sundhnúksgígaröðina að undanförnu. Innlent 24.9.2024 14:02 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 … 74 ›
Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Grindavíkurnefnd segir hættu á að bærinn fari í greiðsluþrot á næsta ári verði ekki brugðist við. Bærinn geti verið rekinn í 1,5 til tveggja milljarða halla á næsta ári. Bæjarstjórn Grindavíkur skorar á þingmenn að samþykkja lagabreytingar sem varða afkomu og húsnæðismál Grindvíkinga sem allra fyrst og á yfirstandandi þingi. Innlent 1.11.2024 08:28
Þakklátur Grindvíkingum fyrir traustið Sigurður Sigurðsson ljósmyndari og björgunarsveitarmaður, betur þekktur sem Siggi Sig, segist gríðarlega þakklátur íbúum Grindavíkur fyrir traustið í hans garð en hann gaf á dögunum út ljósmyndabókina Reykjanes vaknar. Um er að ræða bók með ljósmyndum og stuttum frásögnum af atburðum á Reykjanesi frá janúar 2020 til haustsins 2024. Lífið 26.10.2024 20:02
Heilt ár af samfelldu landrisi í Svartsengi Nú um helgina er ár frá því að landris hófst í Svartsengi. Landrisið hófst af miklum krafti 27. október í fyrra og hefur innstreymi kviku inn í jarðskorpuna nú verið samfellt í heilt ár. Innlent 26.10.2024 14:16
Stuðningslán leysi ekki vanda fyrirtækja í Grindavík Birgitta Rán Friðfinnsdóttir bæjarfulltrúi Miðflokksins í Grindavík er ekki ánægð með frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármála- og efnahagsráðherra um stuðningslán til fyrirtækja í Grindavík. Birgitta segir lán ekki leysa vanda fyrirtækjanna og kallar eftir alvöru aðgerðum. Innlent 23.10.2024 21:27
Karlmaður á níræðisaldri lést í Bláa lóninu Karlmaður á níræðisaldri lést í Bláa lóninu í kvöld. Í tilkynningu frá Bláa lóninu kemur fram að viðbragðsaðilar voru kallaðir að Bláa Lóninu á sjöunda tímanum í kvöld vegna erlends ferðamanns á níræðisaldri sem hafði misst meðvitund. Innlent 23.10.2024 20:53
Tileinkar lagið Grindvíkingum Tónlistarmaðurinn Geir Ólafsson gaf nýverið út lagið „Bærinn okkar“ sem hann tileinkar Grindvíkingum. Hann segir að hugur hans sé sérstaklega hjá börnunum sem hafa verið rifin upp með rótum frá vinum sínum. Tónlist 23.10.2024 15:00
Stuðningslán upp á allt að 49 milljónir króna Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um stuðningslán við atvinnurekendur í Grindavík. Markmið laganna eru að viðhalda atvinnustarfsemi í bænum eða aðstoða resktraraaðila við að byggja upp starfsemi annars staðar á landinu. Innlent 22.10.2024 23:30
Neðri óvissumörkum náð í byrjun nóvember Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram með svipuðum hraða og síðustu vikur. Jarðskjálftavirkni hefur aukist lítillega síðustu daga og búast má við að neðri óvissumörkum á rúmmáli kviku verði náð í byrjun nóvember. Innlent 22.10.2024 17:19
Grindavík eins og „Tsjernobyl án kommúnisma“ Grindavíkurbær var opnaður fyrir almenningi klukkan sex í morgun. Bandarískir ferðamenn líkja bænum við Tsjernobyl án kommúnisma en formaður framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur viðurkennir að mistök hafi verið gerð við vinnslu bæklings með mikilvægum upplýsingum um öryggisatriði. Innlent 21.10.2024 20:00
„Hefði kannski verið heppilegra að allt væri komið“ Formaður Grindavíkurnefndar segir nefndina hafa lagt áherslu á að setja upp aðvörunarskilti inni í bænum. Hann tekur ekki nema að litlu leyti undir gagnrýni lögreglustjóra um skort á upplýsingagjöf en ugglaust hefði verið heppilegra að komin væru skilti fyrir utan bæinn. Innlent 21.10.2024 16:21
Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segist ekki gera stórar athugasemdir við opnun Grindavíkurbæjar, sem varð í dag, en segir þó að upplýsingagjöf til ferðamanna sem hyggist fara í bæinn sé lítil sem engin. Innlent 21.10.2024 11:08
Grindavíkurbær nú opinn almenningi Grindavíkurbær opnaði klukkan sex í morgun, en aðgengi að bænum hefur verið verulegum takmörkunum háð síðustu misserin vegna eldsumbrota. Ferðir fólks eru á eigin ábyrgð. Innlent 21.10.2024 07:55
Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Frá og með klukkan sex í fyrramálið verður Grindavíkurbær opinn fyrir almennri umferð. Ferðamálastofa biðlar til fólks að sýna ábyrgð og virðingu þar sem enn er töluverð hætta á ferð. Innlent 20.10.2024 13:39
Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Það kann að koma einhverjum á óvart en í viðtalsrými sálfræðings er í í hesthúsunum við Sörlaskeið í Hafnarfirði en um er að ræða vinnustað Þorkötlu Elínar Sigurðardóttur á Hlöðuloftinu. Lífið 18.10.2024 10:31
Ekkert bendi til þess að kvikusöfnun sé að hætta Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi hefur haldið áfram á svipuðum hraða síðustu vikuna. Haldi hún áfram á svipuðum hraða og undanfarið er líklegasta sviðsmyndin sú að annað kvikuhlaup og mögulega eldgos verði á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 17.10.2024 16:01
Opna Grindavík öllum eftir helgi Aðgangur að Grindavík verður hindranalaus frá og með mánudagsmorgni samkvæmt ákvörðun framkvæmdanefndar um málefni bæjarins sem kynnt var í dag. Lokað verður aftur ef hættu- eða neyðarstigi verður aftur lýst yfir. Innlent 16.10.2024 13:44
Bein útsending: Verður Grindavík opnuð fyrir öllum? Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ boðar til upplýsingafundar í Tollhúsinu við Tryggvagötu klukkan 13:30. Þar verður farið yfir breytt fyrirkomulag varðandi aðgengi að Grindavík. Beint streymi verður frá fundinum á Vísi. Innlent 16.10.2024 13:11
Boða til upplýsingafundar vegna breytts aðgengis að Grindavík Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ hefur boðað til upplýsingafundar klukkan 13:30 í dag þar sem farið verður yfir breytt fyrirkomulag varðandi aðgengi að Grindavík. Innlent 16.10.2024 09:01
Þurfa að læra að lifa með takmörkunum vegna jarðhræringanna Formaður framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur segir að fólk þurfi að læra að lifa með þeim takmörkunum sem jarðhræringarnar á Reykjanesi setja á sama tíma og unnið sé að því að auka aðgengi að bænum. Tillögur um það verða kynntar á allra næstunni. Innlent 13.10.2024 11:35
Rafeldsneyti vegna íslenskrar tækni dugar til orkuskipta alls skipaflotans Íslenska tæknifyrirtækið Carbon Recycling hefur samið um hönnun rafeldsneytisverksmiðju í Kína. Þetta er einn stærsti samningur í sögu fyrirtækisins en með honum stefnir í að framleiðslumagn vistvæns eldsneytis á grunni íslenskrar tækni dugi til orkuskipta á öllum íslenska skipaflotanum. Innlent 12.10.2024 22:44
Hægir á landrisi GPS-mælingar á Svartsengissvæðinu sýna vísbendingar um að undanfarið hafi smám saman dregið úr hraða á landrisi. Líkanreikningar, sem byggðir eru á GPS-gögnunum, sýna einnig vísbendingar um að örlítið dragi úr kvikuinnflæði undir Svartsengi. Innlent 10.10.2024 16:32
Jakob Birgisson fer á kostum sem Gummi Ben í Körfuboltakvöldi Extra Fyrsti þátturinn af Bónus Körfuboltakvöldi Extra er á dagskrá á Stöð 2 Sport í kvöld. Þátturinn var tekinn upp í hádeginu í dag. Körfubolti 8.10.2024 14:20
„Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Bróðir manns sem lést eftir að hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík segir niðurstöður rannsóknar Vinnueftirlitsins á slysinu með því alvarlegra sem hann hafi litið augum. Nú þurfi dómsmálaráðherra að taka undir kröfur fjölskyldunnar um að setja á fót óháða rannsóknarnefnd. Vinnueftirlitið spyr hvort verkefnið hafi verið áhættunnar virði. Innlent 1.10.2024 19:22
Telur lykilspurningum um banaslysið enn ósvarað Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem lést í vinnuslysi í Grindavík þann 10. janúar segir skýrslu Vinnueftirlitsins styðja eðlilega ósk fjölskyldunnar að heildstæð rannsókn verði gerð að aðdraganda slyssins og eftirleik þess. Innlent 1.10.2024 12:35
Ekkert skriflegt áhættumat og spurt hvort vinnan hafi verið áhættunnar virði Vinnueftirlitið segir að slysið í Grindavík í janúar, þar sem maður féll ofan í sprungu, megi rekja til þess að ekki hafi verið til staðar fullnægjandi áhættumat og að ekki hafi farið fram nægilega góð kynning á helstu hættum sem gætu steðjað að þeim sem ynnu á vettvangi. Þá veltir Vinnueftirlitið því fram hvort verkið sem var unnið hafi verið áhættunnar virði. Innlent 1.10.2024 10:50
„Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Erindi sem var flutt á ráðstefnunni Menntakvika á fimmtudaginn vakti töluverða úlfúð meðal Grindvíkinga en það bar heitið „Óþekku börnin frá Grindavík“. Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu biður Grindvíkinga afsökunar vegna málsins og segir nafnið, sem sé ekki í neinu samhengi við innihald erindisins, óheppilegt. Innlent 28.9.2024 13:47
„Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi á jöfnum hraða. Verkfræðingur í innviðahópi almannavarna segir mikilvægt að undirbúa sig fyrir það að mögulega muni hraun renna yfir Reykjanesbrautina og í átt að Vogum. Mikil verðmæti séu fólgin í því að halda brautinni opinni. Innlent 28.9.2024 12:17
Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Landsréttur hefur sýknað veitingastaðinn Fish house og tryggingafélag hans, Sjóvá, af kröfum manns sem varð fyrir líkamsárás af hendi starfsmanns staðarins á staðnum árið 2019. Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur komist að þeirri niðurstöðu að maðurinn ætti rétt á bótum frá árásarmanninum, tryggingarfélaginu og skemmtistaðnum vegna tjónsins sem hann hlaut af árásinni. Innlent 27.9.2024 11:24
Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Almannavarnarnefnd Suðurnesja utan Grindavíkur í samstarfi við Sveitarfélagið Voga boðar til upplýsingafundar með íbúum Voga í tengslum við jarðhræringar á svæðinu. Á fundinum munu meðal annars fulltrúar Veðurstofunnar og Umhverfisstofnunar vera með erindi og sitja fyrir svörum. Innlent 26.9.2024 19:00
Landris og kvikusöfnun heldur áfram Landris í Svartsengi heldur áfram á svipuðum hraða og verið hefur og hefur kvikusöfnun sömuleiðis haldið áfram á svipuðum hraða og síðustu vikur. Lítil jarðskjálftavirkni í kringum Sundhnúksgígaröðina að undanförnu. Innlent 24.9.2024 14:02