Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Næstu tvö ár ráða úrslitum Þegar litið er yfir sviðið, á þau óveðurský sem nú hrannast upp víðast hvar í hagkerfum heimsins er ljóst að hagstjórn á komandi tveimur árum eða svo getur ráðið miklu um áframhaldandi lífskjarasókn íslensks almennings næsta áratuginn. Fjármálastjórnin og peningamálastjórnin verða að ganga í takt. Umræðan 14.6.2022 08:09 Telur ríkissjóð í gríðarlegri klemmu Stjórnarandstaðan deildi hart á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkissjóð í gríðarlegri klemmu þar sem um fjörutíu milljarðar króna hafi verið teknir úr honum í formi skattalækkanna á undanförnum árum. Innlent 13.6.2022 19:52 Fjármálaáætlun og aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar teknar fyrir á þinginu Alls voru 23 mál á dagskrá þingsins í dag en tólf mál stóðu eftir klukkan þrjú, þar á meðal umræða um fjármálaáætlun næstu fimm ára og fjáraukalög 2022. Gera má ráð fyrir að fundurinn standi yfir í nokkurn tíma en aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar verða einnig til umræðu. Innlent 13.6.2022 15:45 Reiknar með að Ramminn verði samþykktur þrátt fyrir andstöðu Þingflokksformaður Vinstri grænna á von á að rammaáætlunin verði samþykkt í núverandi mynd þrátt fyrir andstöðu samflokksmanns hans við að Héraðsvötn verði færð úr verndar- í biðflokk. Rammaáætlunin væri mikilvægt tæki og því ætti einstakt mál ekki að koma í veg fyrir áætlunin nái fram að ganga. Innlent 12.6.2022 12:29 Horft verði til þyngdar í aðgerðum sem eiga að skila ríkissjóði fimmtán milljörðum Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að meðal annars verði horft til þyngdar ökutækja þegar kemur að boðaðri endurskoðun á skattlagningu á umferð og ökutæki. Reiknað er með að flýting á innleiðingu nýrra gjalda vegna umferðar og eldsneytis skili ríkissjóði fimmtán milljörðum á árunum 2023 til 2027. Meirihluti nefndarinnar telur að ekki sé hægt að horfa mikið lengur framhjá því að núverandi fyrirkomulag komi niður á viðhaldi vega. Innlent 12.6.2022 08:47 Aðgerðirnar til þess fallnar að ala á sundrungu í stað samstöðu Þingmaður Samfylkingarinnar segir nýkynntar aðhaldsaðgerðir stjórnvalda í efnahagsmálum helst bitna á grunnþjónustunni við landsmenn á meðan aðrir sleppi algerlega. Ríkisstjórnin sé að grafa undan velferðarþjónustu þar sem almennum borgurum er kastað fyrir bílinn. Viðskipti innlent 11.6.2022 21:08 Héraðsvötn færð í biðflokk: „Ég er mjög dapur yfir þessari niðurstöðu sem ég styð ekki“ Þingmaður Vinstri grænna ritar ekki undir álit meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar um tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Hann segir niðurstöðu meirihlutans vera sér mikil vonbrigði og þar standi hæst að Héraðsvötn í Skagafirði hafi verið færð í biðflokk úr verndunarflokki. Innlent 11.6.2022 19:39 Ríkisstjórn fyrir virkjunarsinna! Rammaáætlun var ætlað að skapa eins mikla sátt og hægt verður að ná um virkjanir í landinu. Þær breytingar sem stjórnarmeirihlutinn hefur lagt til á þingi gera þá sátt að litlu. Þær byggja ekki á faglegum rökum, heldur pólitískum hrossakaupum innan ríkisstjórnarinnar. Skoðun 11.6.2022 17:01 SUS-arar skutla djömmurum frítt og kalla eftir breytingum Meðlimir Sambands ungra Sjálfstæðismanna ætla að keyra fólki í miðbænum ókeypis um í kvöld. Markmiðið er að varpa ljósi á það sem þau kalla fordæmalaust ástand á leigubílamarkaði hér á landi. Innlent 11.6.2022 15:04 Aðhaldsaðgerðir skila ríkissjóði um 26 milljörðum á næsta ári Ríkið ætlar að spara tæpa tuttugu og sex milljarða króna á næsta ári með aðhaldsaðgerðum og hækkun gjalda. Atvinnuvinnuveganefnd afgreiddi umdeilt frumvarp Lilju Alfreðsdóttur um hækkun endurgreiðslna til kvikmyndagerðar til loka afgreiðslu á Alþingi í dag. Innlent 10.6.2022 19:21 Guðrún Ása nýr aðstoðarmaður Willums Guðrún Ása Björnsdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra. Innlent 10.6.2022 15:27 Upplýst um aðhalds- og tekjuaðgerðir ríkisstjórnar í dag eða á morgun Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir nauðsynlegar aðhaldsaðgerðir stjórnvalda koma fram í nefndaráliti fjárlaganefndar síðar í dag eða á morgun. Samkomulag tókst milli allra þingflokka nema Miðflokksins á Alþingi í gærkvöldi um hvaða mál fá afgreiðslu fyrir þinghlé í næstu viku. Innlent 10.6.2022 12:14 Enginn undir 18 ára afplánað í hefðbundnu fangelsi í fimm ár Enginn einstaklingur undir 18 ára aldri hefur þurft að afplána óskilorðsbundna fangelsisrefsingu í hefðbundnu fangelsi síðastliðin fimm ár. Frá 1. janúar 2017 hefur einungis einn dómur varðandi einstakling undir 18 ára aldri borist Fangelsismálastofnun. Innlent 10.6.2022 10:02 Útlendingafrumvarpi Jóns frestað fram á haust Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur frestað afgreiðslu útlendingafrumvarps síns fram á haust. Jón segir þetta gert til að liðka fyrir þinglokum. Það er því ljóst að málamiðlanir ríkisstjórnarinnar báru ekki árangur. Innlent 9.6.2022 15:50 Innviðaráðherra segir aðgerðir gegn þenslu ekki bitna á framkvæmdum Ríkisstjórnin boðar aðgerðir til að mæta þenslu í hagkerfinu. Innviðaráðherra segir að þetta muni ekki bitna á neinum framkvæmdum. Innlent 8.6.2022 22:20 Leggja til að rannsóknarnefnd verði stofnuð til að rannsaka meðferð fatlaðra á vistheimilum Nefnd sem falið var að undirbúa rannsókn á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks með þroskahömlun og fullorðinna með geðrænan vanda skilaði forsætisráðherra skýrslu sinni í dag. Nefndin leggur til að sérstök rannsóknarnefnd verði stofnum um málið. Innlent 8.6.2022 22:10 „Út með þessa stjórn, hún hefur unnið heljarmikið tjón“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður og þingmaður Miðflokksins, segir að ríkisstjórnin hafi áorkað afar litlu á þeim fimm árum sem hún hefur verið við völd. Stjórnmál séu ekki sérsvið ríkisstjórnarinnar og nú sé „Covid-skjólið“ horfið. Innlent 8.6.2022 20:42 Ríkisstjórnin hræðist að skoða stöðu okkar í breyttum heimi Þingflokksformaður Viðreisnar veltir því fyrir sér hvernig einkunnaspjald ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur lítur út að fyrsta ári eftir endurnýjað samstarf hennar loknu. „Eru allir ráðherrar stoltir á bekkjarmyndinni?“ spyr hann. Innlent 8.6.2022 20:33 Vinstri græn hafi sannað sig sem sú stjórnmálahreyfing sem getur vísað veginn Þingflokksformaður Vinstri grænna - græns framboðs sagði flokkinn hafa sannað sig að vera sú stjórnmálahreyfing sem hefur kjark til að takast á við áskoranir og verkefni, stjórnmálahreyfing sem hikar ekki við samstarf við aðra, sem getur verið í forystu og getur vísað veginn, í ræðu sinni í eldhúsdagsumræðum Alþingis. Innlent 8.6.2022 20:26 Fjármagnseigendur aldrei haft það betra en í stjórnartíð Katrínar Þingmaður Pírata veltir því fyrir sér hvernig væntanlegur kjósandi Vinstri grænna árið 2017, sem hefði ratað í tímavél og skroppið fimm ár fram á við, myndi bregðast við þegar hann sæi hverju atkvæði hans hefði skilað. Hann nefnir til að mynda aukinn ójöfnuð í samfélaginu, brottvísanir flóttafólks og neyðarástand í heilbrigðiskerfinu sem hluti sem ættu að koma hinum ímyndaða tímaflakkara á óvart. Innlent 8.6.2022 20:19 Varnarmálaráðherrar í Reykjavík: Samstíga um að Úkraína verði að vinna stríðið Varnarmálaráðherrar norður Evrópu sögðu á fundi í Reykjavík í dag algera samstöðu ríkja um að Putin verði að tapa stríðinu í Úkraínu. Varnarmálaráðherra Lettlands segir vestræna leiðtoga ekki eiga að velta fyrir sér hvernig Putin líði og undirbúa sig fyrir langt stríð. Erlent 8.6.2022 19:27 „Ákaflega mikilvægur áfangi í höfn“ Magnús Davíð Norðdahl, lögmaður, tilkynnti á Facebook fyrr í dag að mál hans hjá Mannréttindadómstóli Evrópu, vegna ágalla á framkvæmd síðustu Alþingiskosninga, hafi komist í gegnum fyrstu síu dómstólsins. „Ákaflega mikilvægur áfangi í höfn“ skrifar Magnús. Innlent 8.6.2022 14:37 Of stór biti í háls Skipan utanríkismála og varna landsins er eitthvert mikilvægasta viðfangsefni ríkisstjórna á hverjum tíma. Það er því viðvarandi verkefni að tryggja að við fylgjum þróuninni fast eftir. Skoðun 8.6.2022 07:00 Þörf á langtímasýn frekar en átaki í geðheilbrigðismálum Formaður stjórnskipunar og eftirlitsnefndar Alþingis segir fátt koma óvart í svartsýnni skýrslu Ríkisendurskoðunar um geðheilbrigðisþjónustu. Of oft hafi stjórnvöld ráðist í átak í hinum og þessum málaflokkum en nú skorti langtímasýn, fjármagnaðar aðgerðir og pólitískt þrek. Innlent 7.6.2022 13:30 Hvernig væri að þýða tölvuleiki? Fyrir örfáum dögum bárust þær fréttir frá Frönsku akademíunni, sem hefur það hlutverk að rækta franska tungu, að ákveðið hefði verið að banna ýmis tökuorð sem tengjast tölvuleikjum og nota í staðin frönsk heiti. Skoðun 7.6.2022 13:30 Fólk sem gagnrýndi kerfið á ekki upp á pallborðið Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði, gagnrýnir val ráðherra á því fólki sem skipar starfshóp til að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi. Hann segir ávallt byrjað á öfugum enda í aðgerðum sem þessum þar sem hagsmunaaðilar eru kallaðir strax til og vísindalegar aðferðir mega sín lítils. Innlent 5.6.2022 13:30 Vinna ríkisstjórnarinnar ótrúverðug ef frumvarp Jóns nær fram að ganga Þingmaður Pírata segir að ríkisstjórnin geti ekki sett á fót ráðherranefnd sem endurskoða eigi útlendingamál á sama tíma og samþykkja eigi útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Forsætisráðherra segir að með nefndinni sé verið að setja útlendingamál í forgang. Innlent 4.6.2022 12:59 Mikil fækkun búa ógnar dreifðri byggð Búum í landbúnaðargreinum hefur fækkað um 375 á landinu frá árinu 2008 til 2020. Formaður bændasamtakanna hefur áhyggjur af fækkun búa sem hann segir stoð dreifðari byggða. Innlent 4.6.2022 12:29 Þrumuský yfir leigjendum Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Samtaka leigjenda, segir leigjendur hafa þungar áhyggjur af stöðunni á leigumarkaði en allt bendir nú til að leiga hækki enn og aftur og nú rösklega. Guðmundur Hrafn segir ekkert borð fyrir báru og verið sé að trappa upp umræðu til að réttlæta slíkar hækkanir. Innlent 4.6.2022 07:02 Enginn ófriður á stjórnarheimilinu þótt ráðherrar takist á Forsætisráðherra þvertekur fyrir að ófriður sé á stjórnarheimilinu þrátt fyrir ágreining tveggja ráðherra sinna. Formaður Framsóknarflokksins stendur með sínum ráðherra en vill ekki að rifist sé í gegn um fjölmiðla. Innlent 3.6.2022 20:16 « ‹ 79 80 81 82 83 84 85 86 87 … 148 ›
Næstu tvö ár ráða úrslitum Þegar litið er yfir sviðið, á þau óveðurský sem nú hrannast upp víðast hvar í hagkerfum heimsins er ljóst að hagstjórn á komandi tveimur árum eða svo getur ráðið miklu um áframhaldandi lífskjarasókn íslensks almennings næsta áratuginn. Fjármálastjórnin og peningamálastjórnin verða að ganga í takt. Umræðan 14.6.2022 08:09
Telur ríkissjóð í gríðarlegri klemmu Stjórnarandstaðan deildi hart á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkissjóð í gríðarlegri klemmu þar sem um fjörutíu milljarðar króna hafi verið teknir úr honum í formi skattalækkanna á undanförnum árum. Innlent 13.6.2022 19:52
Fjármálaáætlun og aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar teknar fyrir á þinginu Alls voru 23 mál á dagskrá þingsins í dag en tólf mál stóðu eftir klukkan þrjú, þar á meðal umræða um fjármálaáætlun næstu fimm ára og fjáraukalög 2022. Gera má ráð fyrir að fundurinn standi yfir í nokkurn tíma en aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar verða einnig til umræðu. Innlent 13.6.2022 15:45
Reiknar með að Ramminn verði samþykktur þrátt fyrir andstöðu Þingflokksformaður Vinstri grænna á von á að rammaáætlunin verði samþykkt í núverandi mynd þrátt fyrir andstöðu samflokksmanns hans við að Héraðsvötn verði færð úr verndar- í biðflokk. Rammaáætlunin væri mikilvægt tæki og því ætti einstakt mál ekki að koma í veg fyrir áætlunin nái fram að ganga. Innlent 12.6.2022 12:29
Horft verði til þyngdar í aðgerðum sem eiga að skila ríkissjóði fimmtán milljörðum Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að meðal annars verði horft til þyngdar ökutækja þegar kemur að boðaðri endurskoðun á skattlagningu á umferð og ökutæki. Reiknað er með að flýting á innleiðingu nýrra gjalda vegna umferðar og eldsneytis skili ríkissjóði fimmtán milljörðum á árunum 2023 til 2027. Meirihluti nefndarinnar telur að ekki sé hægt að horfa mikið lengur framhjá því að núverandi fyrirkomulag komi niður á viðhaldi vega. Innlent 12.6.2022 08:47
Aðgerðirnar til þess fallnar að ala á sundrungu í stað samstöðu Þingmaður Samfylkingarinnar segir nýkynntar aðhaldsaðgerðir stjórnvalda í efnahagsmálum helst bitna á grunnþjónustunni við landsmenn á meðan aðrir sleppi algerlega. Ríkisstjórnin sé að grafa undan velferðarþjónustu þar sem almennum borgurum er kastað fyrir bílinn. Viðskipti innlent 11.6.2022 21:08
Héraðsvötn færð í biðflokk: „Ég er mjög dapur yfir þessari niðurstöðu sem ég styð ekki“ Þingmaður Vinstri grænna ritar ekki undir álit meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar um tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Hann segir niðurstöðu meirihlutans vera sér mikil vonbrigði og þar standi hæst að Héraðsvötn í Skagafirði hafi verið færð í biðflokk úr verndunarflokki. Innlent 11.6.2022 19:39
Ríkisstjórn fyrir virkjunarsinna! Rammaáætlun var ætlað að skapa eins mikla sátt og hægt verður að ná um virkjanir í landinu. Þær breytingar sem stjórnarmeirihlutinn hefur lagt til á þingi gera þá sátt að litlu. Þær byggja ekki á faglegum rökum, heldur pólitískum hrossakaupum innan ríkisstjórnarinnar. Skoðun 11.6.2022 17:01
SUS-arar skutla djömmurum frítt og kalla eftir breytingum Meðlimir Sambands ungra Sjálfstæðismanna ætla að keyra fólki í miðbænum ókeypis um í kvöld. Markmiðið er að varpa ljósi á það sem þau kalla fordæmalaust ástand á leigubílamarkaði hér á landi. Innlent 11.6.2022 15:04
Aðhaldsaðgerðir skila ríkissjóði um 26 milljörðum á næsta ári Ríkið ætlar að spara tæpa tuttugu og sex milljarða króna á næsta ári með aðhaldsaðgerðum og hækkun gjalda. Atvinnuvinnuveganefnd afgreiddi umdeilt frumvarp Lilju Alfreðsdóttur um hækkun endurgreiðslna til kvikmyndagerðar til loka afgreiðslu á Alþingi í dag. Innlent 10.6.2022 19:21
Guðrún Ása nýr aðstoðarmaður Willums Guðrún Ása Björnsdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra. Innlent 10.6.2022 15:27
Upplýst um aðhalds- og tekjuaðgerðir ríkisstjórnar í dag eða á morgun Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir nauðsynlegar aðhaldsaðgerðir stjórnvalda koma fram í nefndaráliti fjárlaganefndar síðar í dag eða á morgun. Samkomulag tókst milli allra þingflokka nema Miðflokksins á Alþingi í gærkvöldi um hvaða mál fá afgreiðslu fyrir þinghlé í næstu viku. Innlent 10.6.2022 12:14
Enginn undir 18 ára afplánað í hefðbundnu fangelsi í fimm ár Enginn einstaklingur undir 18 ára aldri hefur þurft að afplána óskilorðsbundna fangelsisrefsingu í hefðbundnu fangelsi síðastliðin fimm ár. Frá 1. janúar 2017 hefur einungis einn dómur varðandi einstakling undir 18 ára aldri borist Fangelsismálastofnun. Innlent 10.6.2022 10:02
Útlendingafrumvarpi Jóns frestað fram á haust Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur frestað afgreiðslu útlendingafrumvarps síns fram á haust. Jón segir þetta gert til að liðka fyrir þinglokum. Það er því ljóst að málamiðlanir ríkisstjórnarinnar báru ekki árangur. Innlent 9.6.2022 15:50
Innviðaráðherra segir aðgerðir gegn þenslu ekki bitna á framkvæmdum Ríkisstjórnin boðar aðgerðir til að mæta þenslu í hagkerfinu. Innviðaráðherra segir að þetta muni ekki bitna á neinum framkvæmdum. Innlent 8.6.2022 22:20
Leggja til að rannsóknarnefnd verði stofnuð til að rannsaka meðferð fatlaðra á vistheimilum Nefnd sem falið var að undirbúa rannsókn á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks með þroskahömlun og fullorðinna með geðrænan vanda skilaði forsætisráðherra skýrslu sinni í dag. Nefndin leggur til að sérstök rannsóknarnefnd verði stofnum um málið. Innlent 8.6.2022 22:10
„Út með þessa stjórn, hún hefur unnið heljarmikið tjón“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður og þingmaður Miðflokksins, segir að ríkisstjórnin hafi áorkað afar litlu á þeim fimm árum sem hún hefur verið við völd. Stjórnmál séu ekki sérsvið ríkisstjórnarinnar og nú sé „Covid-skjólið“ horfið. Innlent 8.6.2022 20:42
Ríkisstjórnin hræðist að skoða stöðu okkar í breyttum heimi Þingflokksformaður Viðreisnar veltir því fyrir sér hvernig einkunnaspjald ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur lítur út að fyrsta ári eftir endurnýjað samstarf hennar loknu. „Eru allir ráðherrar stoltir á bekkjarmyndinni?“ spyr hann. Innlent 8.6.2022 20:33
Vinstri græn hafi sannað sig sem sú stjórnmálahreyfing sem getur vísað veginn Þingflokksformaður Vinstri grænna - græns framboðs sagði flokkinn hafa sannað sig að vera sú stjórnmálahreyfing sem hefur kjark til að takast á við áskoranir og verkefni, stjórnmálahreyfing sem hikar ekki við samstarf við aðra, sem getur verið í forystu og getur vísað veginn, í ræðu sinni í eldhúsdagsumræðum Alþingis. Innlent 8.6.2022 20:26
Fjármagnseigendur aldrei haft það betra en í stjórnartíð Katrínar Þingmaður Pírata veltir því fyrir sér hvernig væntanlegur kjósandi Vinstri grænna árið 2017, sem hefði ratað í tímavél og skroppið fimm ár fram á við, myndi bregðast við þegar hann sæi hverju atkvæði hans hefði skilað. Hann nefnir til að mynda aukinn ójöfnuð í samfélaginu, brottvísanir flóttafólks og neyðarástand í heilbrigðiskerfinu sem hluti sem ættu að koma hinum ímyndaða tímaflakkara á óvart. Innlent 8.6.2022 20:19
Varnarmálaráðherrar í Reykjavík: Samstíga um að Úkraína verði að vinna stríðið Varnarmálaráðherrar norður Evrópu sögðu á fundi í Reykjavík í dag algera samstöðu ríkja um að Putin verði að tapa stríðinu í Úkraínu. Varnarmálaráðherra Lettlands segir vestræna leiðtoga ekki eiga að velta fyrir sér hvernig Putin líði og undirbúa sig fyrir langt stríð. Erlent 8.6.2022 19:27
„Ákaflega mikilvægur áfangi í höfn“ Magnús Davíð Norðdahl, lögmaður, tilkynnti á Facebook fyrr í dag að mál hans hjá Mannréttindadómstóli Evrópu, vegna ágalla á framkvæmd síðustu Alþingiskosninga, hafi komist í gegnum fyrstu síu dómstólsins. „Ákaflega mikilvægur áfangi í höfn“ skrifar Magnús. Innlent 8.6.2022 14:37
Of stór biti í háls Skipan utanríkismála og varna landsins er eitthvert mikilvægasta viðfangsefni ríkisstjórna á hverjum tíma. Það er því viðvarandi verkefni að tryggja að við fylgjum þróuninni fast eftir. Skoðun 8.6.2022 07:00
Þörf á langtímasýn frekar en átaki í geðheilbrigðismálum Formaður stjórnskipunar og eftirlitsnefndar Alþingis segir fátt koma óvart í svartsýnni skýrslu Ríkisendurskoðunar um geðheilbrigðisþjónustu. Of oft hafi stjórnvöld ráðist í átak í hinum og þessum málaflokkum en nú skorti langtímasýn, fjármagnaðar aðgerðir og pólitískt þrek. Innlent 7.6.2022 13:30
Hvernig væri að þýða tölvuleiki? Fyrir örfáum dögum bárust þær fréttir frá Frönsku akademíunni, sem hefur það hlutverk að rækta franska tungu, að ákveðið hefði verið að banna ýmis tökuorð sem tengjast tölvuleikjum og nota í staðin frönsk heiti. Skoðun 7.6.2022 13:30
Fólk sem gagnrýndi kerfið á ekki upp á pallborðið Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði, gagnrýnir val ráðherra á því fólki sem skipar starfshóp til að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi. Hann segir ávallt byrjað á öfugum enda í aðgerðum sem þessum þar sem hagsmunaaðilar eru kallaðir strax til og vísindalegar aðferðir mega sín lítils. Innlent 5.6.2022 13:30
Vinna ríkisstjórnarinnar ótrúverðug ef frumvarp Jóns nær fram að ganga Þingmaður Pírata segir að ríkisstjórnin geti ekki sett á fót ráðherranefnd sem endurskoða eigi útlendingamál á sama tíma og samþykkja eigi útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Forsætisráðherra segir að með nefndinni sé verið að setja útlendingamál í forgang. Innlent 4.6.2022 12:59
Mikil fækkun búa ógnar dreifðri byggð Búum í landbúnaðargreinum hefur fækkað um 375 á landinu frá árinu 2008 til 2020. Formaður bændasamtakanna hefur áhyggjur af fækkun búa sem hann segir stoð dreifðari byggða. Innlent 4.6.2022 12:29
Þrumuský yfir leigjendum Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Samtaka leigjenda, segir leigjendur hafa þungar áhyggjur af stöðunni á leigumarkaði en allt bendir nú til að leiga hækki enn og aftur og nú rösklega. Guðmundur Hrafn segir ekkert borð fyrir báru og verið sé að trappa upp umræðu til að réttlæta slíkar hækkanir. Innlent 4.6.2022 07:02
Enginn ófriður á stjórnarheimilinu þótt ráðherrar takist á Forsætisráðherra þvertekur fyrir að ófriður sé á stjórnarheimilinu þrátt fyrir ágreining tveggja ráðherra sinna. Formaður Framsóknarflokksins stendur með sínum ráðherra en vill ekki að rifist sé í gegn um fjölmiðla. Innlent 3.6.2022 20:16