Körfubolti

„Miklu betri og stærri þjálfarar en ég sem hafa verið reknir“

Aron Guðmundsson skrifar
Maté Dalmay er ekki lengur þjálfari karlaliðs Hauka í körfubolta
Maté Dalmay er ekki lengur þjálfari karlaliðs Hauka í körfubolta

Komið er að leiðar­lokum í sam­starfi Hauka og þjálfarans Maté Dal­may. Greint var frá starfs­lokum hans í gær. Haukar eru á botni Bónus deildarinnar og segir Maté að álit manna hafi verið að full­reynt hafi verið með sam­starfið.

Haukar hafa tapað öllum leikjum á yfir­standandi tíma­bili en ákveðið var fyrir tíma­bilið að keyra liðið áfram á ungum og efni­legum leik­mönnum í bland við er­lenda at­vinnu­menn. Maté hefur haldið utan um stjórnar­tauma hjá liðinu síðan árið 2021 og í yfir­lýsingu körfu­knatt­leiks­deildar Hauka í gær sagði að sam­komu­lag hefði náðst um starfs­lok hans. Það var hins vegar ekki að frum­kvæði Maté sem var ekki á því að gefast upp.

„Mönnum fannst þetta bara full­reynt hjá mér,“ segir Maté í sam­tali við íþrótta­deild. „Við erum náttúru­lega 0-8. Þá þarf þjálfarinn stundum að stíga frá og maður skilur það alveg.“

„Ég er bara þannig að ég hef alltaf trú á sjálfum mér þó svo að við höfum verið að tapa. Ég hefði nú viljað undir­búa næsta leik, vinna hann og sagði það svo sem við stjórnina fyrir viku síðan að ef þeir vildu nýjan þjálfara þá þyrftu þeir að sparka mér héðan því ég gefst ekki upp sjálfur. Á sama tíma erum við með átta töp, núll sigra og þá gekk ekki vel hjá okkur í fyrra. Alveg eins og ég hef rekið ein­hverja tíu til tólf leik­menn á síðustu sex árum þá er þetta bara hluti af þessum heimi.“

„Náðum ekki að byggja upp trú eftir þann leik“

Ekki hafi tekist að byggja upp trú á verk­efninu eins og hann hefði viljað eftir afar súrt tap gegn Álfta­nesi í sjöttu um­ferð og segist Maté svekktur að hafa ekki valið betur í sumar hvað er­lenda leik­menn varðar er hann setti liðið saman.

„Það komu tveir leikir sem voru 50/50, á móti Þór Þor­láks­höfn og Álfta­nesi og mér leið svaka­lega illa eftir að við töpuðum fyrir Álfta­nesi því mér leið eins og að það hafi verið tækifærið til að stóru póstarnir í liðinu fengju trú á því að gætum unnið saman. Þjálfarinn og leik­menn. Ég held að við höfum ekki náð að byggja upp trú eftir þann leik. Kannski getur nýr þjálfari það.

Ég er svekktur að hafa ekki valið betur í sumar þegar að ég setti saman liðið mitt. Ég hefði þurft að negla alveg svaka­lega á er­lendu leik­menn liðsins. Það tókst ekki. Við hefðum þurft betri leik­menn, meiri leið­toga í þennan unga kjarna sem er í Haukum af ís­lenskum leik­mönnum. Ég á eftir að fara í gegnum ferlið, hvað maður lærir af þessu. Ég held að vanda­málið hafi ekki verið hvers konar motion kerfi við hlupum í sókn. Sam­setningin virkaði ekki. Ég setti þetta saman. Það er mér að kenna.“

Finnst þér þessir er­lendu leik­menn að ein­hverju leiti hafa brugðist þér og félaginu?

„Ég ætla ekki að mæta hingað og henda þeim fyrir rútuna. Það eru aðrir búnir að ræða það í sjón­varpsþáttum og hlaðvörpum. Ég þarf því ekkert líka að gagn­rýna þá ofan á allt og alla.“

Úr rústum Covid í efstu deild

En ertu klár í að hoppa strax aftur út í þjálfun?

„Ég veit það ekki. Ég er núna búinn að þjálfa níu ár í röð í efstu tveimur deildunum. Tók við Haukum í 1.deild og það voru tveir leik­menn í liðinu. Emil Barja og bróðir hans. Svo ein­hverjir undir átján ára strákar. Þetta hefur verið ágætis upp­bygging þó svo að við séum á vondum stað núna í efstu deild. Tveir leik­menn þegar að ég tók við liðinu í fyrstu deild í kjölfarið á Co­vid rústum víða. Við áttum gott ár í fyrstu deild, eitt gott ár í efstu deild og því miður erum við núna búnir að eiga vont eitt og hálft ár núna. Þannig hugurinn er kannski í því núna að slaka aðeins á.“

„Ég hef lært gríðar­lega mikið og auðvitað er ég þakk­látur fyrir að hafa fengið að koma inn í stóran klúbb í ís­lenskum körfu­bolta. Ég var að keyra í fjögur ár til Hvera­gerðis, og er líka þakk­látur fyrir það því ég á engan lands­liðs­feril sem leik­maður, enga vini sem að hreyfa nálina í þessum bransa þannig lagað séð. Maður er þakk­látur fyrir að hafa fengið að þjálfa Hauka. Svona er þetta bara í íþróttum. Það eru miklu betri og stærri þjálfarar en ég sem hafa verið reknir.“

Sjá má viðtalið við Mate í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×