Snjóamet slegið í höfuðborginni 29. desember 2011 07:00
Snjór hefur nú legið yfir höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess samfleytt frá 26. nóvember. Aldrei áður frá upphafi mælinga hefur snjór verið samfleytt svo lengi á fyrri hluta vetrar, segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. „Þetta hefur ekki verið sérstaklega mikil snjódýpt, en hann er óvenju þrálátur," segir Trausti. Ekkert bendir til þess að snjórinn fari á næstunni, þó að spáð sé örlítilli hláku um helgina. Snjórinn hefur ekki verið sérstaklega mikill allt tímabilið, en náði þó 21 sentímetra dýpt á þriðjudag, segir Trausti. Að meðaltali hefur snjórinn verið á bilinu 13 til 14 sentímetra djúpur á tímabilinu. Þó að snjórinn hafi spillt færð hefur hann ekki valdið verulegum vandræðum. Það gerist yfirleitt ekki fyrr en snjórinn nær 28 til 30 sentímetra dýpt, segir Trausti. Desember hefur verið kaldur, og miðað við mælingar í gær er hann sautjándi kaldasti desembermánuður frá því mælingar hófust, segir Trausti.- bj
Fréttir Mest lesið Ekki allir sammála um magn jólaskreytinga eða litaval Innlent Hægri hönd Selenskís kynnist Trump-liðum Erlent Háskólafólk mótmælir gjaldtöku á nemendur utan EES Innlent Launmorð á götum New York Erlent Konfektið í hæstu hæðum Innlent Þessi voru oftast strikuð út í Reykjavík Innlent Bankarnir of bráðir í vaxtahækkunum Innlent Auðjöfur og einkageimfari mun stýra NASA Erlent Plötusnúður fagnar sigri gegn Reyni Traustasyni Innlent Rútuslys austan við Hala í Suðursveit Innlent Fleiri fréttir Háskólafólk mótmælir gjaldtöku á nemendur utan EES Ekki allir sammála um magn jólaskreytinga eða litaval Konfektið í hæstu hæðum Bankarnir of bráðir í vaxtahækkunum Rútuslys austan við Hala í Suðursveit Traustar viðræður, verðhækkanir og jólastuð Rannsókn á manndrápi við Krýsuvíkurveg til saksóknara Tveir grunaðir um frelsissviptingu Slökkvilið kallað út vegna bruna í Stjörnugróf Þessi voru oftast strikuð út í Reykjavík Hafa ekki enn lent í vandræðum í viðræðum Plötusnúður fagnar sigri gegn Reyni Traustasyni Var að reyna að hjálpa en sýndi af sér stórfellt gáleysi Ætla að tryggja að einn af hverjum tíu sé nýliði Ekkert skapalón til fyrir myndun nýrrar ríkisstjórnar Funda áfram á morgun Telur fækkun ráðuneyta óheppilega Gestur fari með rangt mál varðandi endurtalningu Ný stjórn í burðarliðnum Ásgeir Þór og Theodór grípa boltana hans Gríms Sánan í Vesturbæ rifin Linda Dröfn á lista BBC um 100 áhrifamestu konur heims Umboðsmaður Alþingis óskar svara frá Útlendingastofnun Rifrildi, innbrot og eftirför Fjárhagsáætlun samþykkt eftir ellefu tíma umræður Fagna þotunni sem markar tímamót í sögu Icelandair Stígarnir fá falleinkunn hjá hjólafólki Gátu loksins mætt aftur í skólann sinn á Selfossi „Menn ætla sér alla leið með þetta“ Skæð fuglaflensa fannst í kalkúnum í Ölfusi Sjá meira