Innlent

Sánan í Vestur­bæ rifin

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Það verður sánulaust í Vesturbæjarlaug frá og með morgundeginum.
Það verður sánulaust í Vesturbæjarlaug frá og með morgundeginum. Vísir/Arnar

Frá og með morgundeginum verður sánuklefanum í Vesturbæjarlaug lokað. Hann verður í kjölfarið rifinn, ásamt öðrum klefa sem hefur verið lokaður síðan í haust.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu Vesturbæjarlaugar. Þar segir að verið sé að hefja niðurrif á sánaklefunum tveimur sem laugargestir hafa getað nýtt sér. Það sé fyrsti liður í endurbótum á elsta hluta mannvirkisins. 

„Endanleg hönnun á því sem kemur í staðinn liggur ekki fyrir en þegar hún er tilbúin verður hún kynnt fyrir gestum,“ segir í færslunni, þar sem gestir eru beðnir velvirðingar á óþægindum og raski sem niðurrifið kunni að hafa í för með sér. 

Á Facebook-síðu laugarinnar eru gestir hvattir til að mæta í einhverja af sundlaugum Reykjavíkur og svara könnun um viðhorf til gufubaða. Þar er allt undir; blautgufur, þurrgufur og infrarauðar gufur. 

Afnám kynjaskiptingar umdeilt

Snemma í október var fjallað um gremju fastagesta laugarinnar vegna þess að kynjaskipting í sáunuklefum hefði verið afnumin. Forstöðumaður laugarinnar sagði þó lítið annað hafa verið í stöðunni, þar sem karlasánan hafi verið orðin fúin og ógeðsleg. Hún hefur því verið lokuð að undanförnu og öllum gestum heimilt að nota sánuna sem áður var fyrir konur. 

Í fréttinni hér að neðan var fjallað um „Stóra sáunumálið“ og meðal annars greint frá því að kynjasameiningunni væri ætlað að stemma stigu við óviðeigandi hegðun sem hefði viðgengist í sánuklefunum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×