Innlent

Lítill arfur á barns­aldri dró dilk á eftir sér

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Ekki kemur fram í úrskurðinum hvar konan hugðist kaupa sér hús. Mögulega var það á Eyrarbakka, þar sem þessi mynd er tekin.
Ekki kemur fram í úrskurðinum hvar konan hugðist kaupa sér hús. Mögulega var það á Eyrarbakka, þar sem þessi mynd er tekin. vísir/vilhelm

Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu konu sem taldi sig eiga rétt á helmingsafslætti stimpilgjalds vegna fyrstu kaupa íbúðarhúsnæðis. Var það vegna eignarhlutar í íbúðarhúsnæði, sem hún hlaut í arf á barnsaldri, að virði 45.000 króna.

Úrskurður yfirskattanefndar lá fyrir í síðasta mánuði. Konan kærði ákvörðun sýslumanns um að synja enni um helmingsafslátt af stimpilgjaldinu í júlí.  

Í úrskurðinum er rakið að eignarhlutur hennar í umræddu íbúðarhúsnæði sé 0,89%. Að teknu tilliti til fasteignamats húsnæðisins 5.060.000 krónur sé ljóst að verðmæti eignarhlutar kæranda sé undir fjárhæð helmingsafsláttar af stimpilgjaldi eða 45.034 krónur. 

Hún taldi augljóst að ekki væri hægt að líta á þennan litla eignarhlut sem fyrstu eign sem hagnýta megi með nokkrum hætti. Fyrstu kaupendur eigi rétt á afslættinum lögum samkvæmt og niðurstaðan gangi í berögg við jafnræðisreglu stjórnarskrár. Sýslumaður rakti í umsögn að ekki væri skilyrði um að þinglýstur eigandi hafi átt tiltekna prósentu í fasteign heldur sé nægilegt að hann hafi áður verið þinglýstur eigandi.

Yfirskattanefnd rakti þær breytingar sem gerðar voru á lögum sem varða stimpilgjald og úrskurð yfirskattanefndar sem leiddi til lagabreytinga. Með úrskurði árið 2019 taldi nefndin að „við framkvæmd skilyrðis þess efnis, að kaupandi hefði ekki verið áður þinglýstur eigandi að íbúðarhúsnæði, bæri að líta framhjá íbúðareign sem til hefði komið vegna arftöku hlutaðeigandi, enda hefði hann ekki haft viðkomandi íbúð til eigin nota.“

Með lagabreytingu hafi verið kveðið skýrt á um það skilyrði að að kaupandi íbúðarhúsnæðis hafi ekki áður verið þinglýstur eigandi að íbúðarhúsnæði, hvort sem er með kaupum, arftöku, gjafagerningi eða eignaryfirfærslu með hvers kyns öðrum hætti. Stærð eignarhlutar skipti ekki máli í þessu sambandi. 

Með vísan til þessa var kröfu konunnar hafnað. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×