Glæsilegt Íslandsmet Anítu dugði ekki til Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2016 14:45 Aníta var glöð eftir að hún hljóp í Ríó í morgun. vísir/anton Aníta Hinriksdóttir bætti þriggja ára Íslandsmet sitt í 800 m hlaupi kvenna á Ólympíuleikunum í Ríó í dag. Hún komst þó ekki áfram í undanúrslitin. Hún var í sjötta sæti í sínum riðli sem var mjög hraður. Hún náði 20. besta tímanum í undanrásunum en það dugði ekki til að komast í undanúrslitin. Aníta hljóp á 2:00,14 mínútum sem er nýtt Íslandsmet en gamla metið var 2:00,49 mínútur og var sett árið 2013. Hin tvítuga Aníta komst því afar vel frá sínum fyrstu Ólympíuleikum en þetta eru vonandi þeir fyrstu af mörgum hjá henni. Efstu tveir keppendurnir úr hverjum riðli komust áfram sem og þeir hlauparar sem áttu átta bestu tímana þar fyrir utan. Aníta var í tíunda sæti í þeim hópi og sat því eftir, þrátt fyrir að sex keppendur sem voru með lakari tíma komust áfram. Þeir hlauparar voru hins vegar í einum tveimur efstu sætanna í sínum riðli. Aníta hefur þar með lokið keppni á Ólympíuleikunum í Ríó en hún var síðasti íslenski keppandinn á leikunum að þessu sinni. Melissa Bishop, sem hljóp í sama riðli og Aníta, náði besta tímanum í undanrásunum er hún hljóp á 1:58,38 mínútum. Reyndar voru fjórir af fimm hröðustu keppendum undanrásanna í riðli Anítu. Caster Semenya frá Suður-Afríku, heimsmeistarinn frá HM í Berlín 2009 og silfurverðlaunahafinn í Lundúnum, komst örugglega áfram en hún náði sjötta besta tímanum í undanrásunum.Vísir lýsti hlaupinu sjálfu, aðdragandanum og eftirmálanum, í beinni á Twitter. Hér fyrir neðan má lesa lýsinguna.Aníta á ÓL í Ríó - Curated tweets by VisirSport Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Átján ára vonarstjarna pílukastsins dæmd í átta ára bann Sport Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 19-30 | Heim af EM eftir kennslustund Handbolti Óánægður eftir brot á leikmanni Þóris: „Lífshættulegt“ Handbolti Oft spurt hvernig sé að vinna með „fúla Íslendingnum“ Handbolti Hill hneykslaður: „Er Schumacher harmleikurinn ekki nóg fyrir sumt fólk?“ Formúla 1 Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar Ingi ekki með á HM Handbolti Arsenal dróst gegn Man. Utd en Liverpool og Tottenham heppin Enski boltinn Fleiri fréttir Reiddist fréttamanni: Veist við hvern þú ert að tala Skýrsla Vals: Bölvaður Berlínarmúrinn Tveir nýliðar í hópi þjóða sem Ísland gæti mætt á EM í Sviss Draumabyrjun hjá Nistelrooy „Fyrir mig var þetta gríðarlega erfitt“ Neuer sá rautt og Bayern enn á ný úr leik Tárvot Andrea: „Ógeðslega sár en stolt“ Elín Rósa: Við náðum okkar helsta markmiði „Ákveðinn í að láta þennan leik ekki sitja í mér“ „Langar svolítið að setja punktinn aftan við þetta mót“ „Er bara ekkert hjarta í liðinu til að klára svona“ Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 19-30 | Heim af EM eftir kennslustund Stórkostlegt svar Stólanna gegn toppliðinu Svona eru milliriðlar EM: Þórir byrjar á Dönum Uppgjörið: Keflavík - Aþena 74-59 | Meistararnir stungu af í seinni Stórsigur eftir erfiða tíma hjá Barcelona Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Færeyjum skellt af herraþjóðinni og Holland vann með tuttugu Elísa veik og ekki með Tíu sinnum betri handboltaferð en aðrir hafa farið í Dagar Perez hjá Red Bull virðast taldir „Við sjáum möguleika þarna“ Fær meira fyrir að tala í hálftíma en fyrir heilt tímabil í WNBA „Þær eru búnar að taka nokkra krísufundina“ Ómar með þrjú slitin liðbönd: „Líklegast er HM ekki möguleiki“ Útilokar ekki að Ómar Ingi verði með á HM Dramatískt mark Ísabellu tryggði Íslandi áfram Þegar stelpurnar okkar unnu Þjóðverja Ómar Ingi ekki með á HM „Þýska liðið er allt önnur skepna“ Sjá meira
Aníta Hinriksdóttir bætti þriggja ára Íslandsmet sitt í 800 m hlaupi kvenna á Ólympíuleikunum í Ríó í dag. Hún komst þó ekki áfram í undanúrslitin. Hún var í sjötta sæti í sínum riðli sem var mjög hraður. Hún náði 20. besta tímanum í undanrásunum en það dugði ekki til að komast í undanúrslitin. Aníta hljóp á 2:00,14 mínútum sem er nýtt Íslandsmet en gamla metið var 2:00,49 mínútur og var sett árið 2013. Hin tvítuga Aníta komst því afar vel frá sínum fyrstu Ólympíuleikum en þetta eru vonandi þeir fyrstu af mörgum hjá henni. Efstu tveir keppendurnir úr hverjum riðli komust áfram sem og þeir hlauparar sem áttu átta bestu tímana þar fyrir utan. Aníta var í tíunda sæti í þeim hópi og sat því eftir, þrátt fyrir að sex keppendur sem voru með lakari tíma komust áfram. Þeir hlauparar voru hins vegar í einum tveimur efstu sætanna í sínum riðli. Aníta hefur þar með lokið keppni á Ólympíuleikunum í Ríó en hún var síðasti íslenski keppandinn á leikunum að þessu sinni. Melissa Bishop, sem hljóp í sama riðli og Aníta, náði besta tímanum í undanrásunum er hún hljóp á 1:58,38 mínútum. Reyndar voru fjórir af fimm hröðustu keppendum undanrásanna í riðli Anítu. Caster Semenya frá Suður-Afríku, heimsmeistarinn frá HM í Berlín 2009 og silfurverðlaunahafinn í Lundúnum, komst örugglega áfram en hún náði sjötta besta tímanum í undanrásunum.Vísir lýsti hlaupinu sjálfu, aðdragandanum og eftirmálanum, í beinni á Twitter. Hér fyrir neðan má lesa lýsinguna.Aníta á ÓL í Ríó - Curated tweets by VisirSport
Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Átján ára vonarstjarna pílukastsins dæmd í átta ára bann Sport Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 19-30 | Heim af EM eftir kennslustund Handbolti Óánægður eftir brot á leikmanni Þóris: „Lífshættulegt“ Handbolti Oft spurt hvernig sé að vinna með „fúla Íslendingnum“ Handbolti Hill hneykslaður: „Er Schumacher harmleikurinn ekki nóg fyrir sumt fólk?“ Formúla 1 Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar Ingi ekki með á HM Handbolti Arsenal dróst gegn Man. Utd en Liverpool og Tottenham heppin Enski boltinn Fleiri fréttir Reiddist fréttamanni: Veist við hvern þú ert að tala Skýrsla Vals: Bölvaður Berlínarmúrinn Tveir nýliðar í hópi þjóða sem Ísland gæti mætt á EM í Sviss Draumabyrjun hjá Nistelrooy „Fyrir mig var þetta gríðarlega erfitt“ Neuer sá rautt og Bayern enn á ný úr leik Tárvot Andrea: „Ógeðslega sár en stolt“ Elín Rósa: Við náðum okkar helsta markmiði „Ákveðinn í að láta þennan leik ekki sitja í mér“ „Langar svolítið að setja punktinn aftan við þetta mót“ „Er bara ekkert hjarta í liðinu til að klára svona“ Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 19-30 | Heim af EM eftir kennslustund Stórkostlegt svar Stólanna gegn toppliðinu Svona eru milliriðlar EM: Þórir byrjar á Dönum Uppgjörið: Keflavík - Aþena 74-59 | Meistararnir stungu af í seinni Stórsigur eftir erfiða tíma hjá Barcelona Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Færeyjum skellt af herraþjóðinni og Holland vann með tuttugu Elísa veik og ekki með Tíu sinnum betri handboltaferð en aðrir hafa farið í Dagar Perez hjá Red Bull virðast taldir „Við sjáum möguleika þarna“ Fær meira fyrir að tala í hálftíma en fyrir heilt tímabil í WNBA „Þær eru búnar að taka nokkra krísufundina“ Ómar með þrjú slitin liðbönd: „Líklegast er HM ekki möguleiki“ Útilokar ekki að Ómar Ingi verði með á HM Dramatískt mark Ísabellu tryggði Íslandi áfram Þegar stelpurnar okkar unnu Þjóðverja Ómar Ingi ekki með á HM „Þýska liðið er allt önnur skepna“ Sjá meira